← Allar ferðir

Singapúr, Víetnam og Kambódía

6.–25. nóvember 2023

Ferðin er uppseld
20 dagarLengd ferðar
20 áfangarFerðaáætlun
795.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 016. nóvember 2023Flug til Singapúr

    Flogið frá Keflavík með FI 454 til London Heathrow kl. 16.20 og lent þar kl. 19.30. Síðan áfram með Singapore Airlines til Singapore kl. 22.05. Singapore Airlines er það flugfélag sem flestir farþegar gefa hæstu einkunn, ekki síst vegna frábærrar þjónustu. Matur og allir drykkir eru ókeypis um borð.

  2. 027. nóvember 2023Singapúr

    Lent á Changi-flugvelli í Singapúr kl. 19.00. Ekið inn í miðborgina (45 mín.) og skráð sig inn á Hotel Paradox Merchant Court (4*****). Margir vilja eflaust hvíla sig eftir flugið og halda kyrru fyrir á hótelinu, en ef einhver er svangur erum við á réttum stað því Singapúr heimsfræg fyrir dásamleg veitingahús af fjölbreyttasta tagi. Matargerðarlistin er oft bræðingur af því besta frá Kínverjum, Indverjum, Malajum og jafnvel Aröbum. Sumir segja að hvergi í heiminum sé betra að borða en í þessari borg. Einfaldasta og einna vinsælasta tegund matstaða í Singapúr kallast Hawker Centre, sem er það sem við þekkjum sem mathallir. Þarna má fá gómsæta máltíð með stórum bjór fyrir 500-1.000 íslenskar krónur. Á árbakkanum, ekki langt frá Paradox Merchant Court, er eitt helsta veitingahúsahverfi Singapúr, Clarke Quay. Sömuleiðis er ekki langt til Boat Quay. Um alla borgina er svo fjölbreytt flóra veitingastaða sem gleður bragðkirtla vandlátra ferðamanna hvaðanæva að úr heiminum.

  3. 038. nóvember 2023Singapúr

    Eftir morgunverð á hótelinu kl. 9.00 er farið í kynnisferð um borgina. Singapúr er einstakur staður, mesta heimsborg Asíu, þar sem gífurlegur metnaður ríkir á öllum sviðum, enda er efnahagsástandið eins og best gerist á Vesturlöndum og velmegun augljós. Landrými er takmarkað og því mikið um háar, fallega hannaðar byggingar en þess vandlega gætt að skilja hvarvetna eftir spildur af upprunalegum frumskógi eyjarinnar á milli húsa, mörg hundruð græn svæði bæði stór og smá. Við byrjum á að skoða hverfi og byggingar frá nýlendutíma Breta, Krikketklúbbinn, Þinghúsið og Ráðhúsið. Þá er staldrað við í Merlion Park, við lónið Marina Bay, þar sem áður var umskipunarhöfnin, en skartar nú allt um kring stórfenglegum mannvirkjum. Næst er ekið eftir Orchard Road þar sem einhverjar glæsilegustu verslunarhallir Asíu standa í röðum. Kynnisferðinni lýkur í Chinatown, Kínahverfinu, þar sem nýr og gamall tími tvinnast saman á skemmtilegan hátt – hefðbundnar búðir, listiðnaður, kaffi- og veitingahús – og við skoðum m.a. stærsta Búddamusterið í hverfinu. Eftir hádegi fer hver sinna ferða í Singapúr. Úr mörgu er að moða. Urmull af söfnum, útivistarsvæðum, áhugaverðum mannvirkjum, verslunarhverfum, veitingahúsum o.s.frv. Uppástungur: Fá sér „Singapore Sling kokteil“ á Raffles-hótelinu og/eða Lantern Bar á þaki Fullerton Bay Hotel, skoða Marina Sands Hotel, eina frægustu og dýrustu byggingu veraldar, fara upp á „skipið“, þar sem sundlaugin er, á toppi turnanna þriggja og horfa yfir borgina og höfnina. Í kjallara hótelsins er stærsta spilavíti Asíu. Í Singapúr er fjöldi góðra safna svo sem National Museum of Singapore, Asian Civilisations Museum, Peranakan Museum og Singapore Art Museum.

  4. 049. nóvember 2023Singapúr–Hanoi

    Morgunverður og útskráning á hótelinu. Þar sem brottför út á flugvöll er ekki fyrr en á hádegi er hægt að nota morguninn til að sjá sig um í borginni, en kl. 12.00 er ekið út á Changi-flugvöll þaðan sem flogið er með SQ194 kl. 15.10 til Hanoi og lent kl. 17.30. Ath! Við verðum sjálf að sækja um „Visa on Arrival“ á netinu, hvert og eitt, áður en lagt er upp í ferðina. Frekari leiðbeiningar um það verða sendar þegar nær dregur. Staðarleiðsögumaður frá Exo Travel tekur á móti hópnum á flugvellinum. Ekið á The Ann Hotel þar sem gist verður næstu þrjár nætur.

  5. 0510. nóvember 2023Hanoi

    Að loknum morgunverði kl. 8.30 er lagt af stað í heils dags kynnisferð um Hanoi. Fyrst er haldið á matvælamarkaðinn. Við göngum um þrönga ganga og ranghala þar sem ýmis forvitnileg matvara er seld, til að mynda lifandi froskar. Þarna er ævinlega iðandi mannlíf, borgarbúar að draga björg í bú. Þá er ekið að Ho Tay (Vesturvatni) og skoðað Búddahofið Tran Quoc sem byggt var á 6. öld e.Kr. Þá liggur leiðin á Víetnamska þjóðfræðisafnið þar sem fá má allgóða mynd af fjölbreyttum uppruna kynþátta og sögu víetnömsku þjóðarinnar í aldanna rás. Síðan er haldið að vatninu Hoan Kiem og skoðaður minnisvarðinn um Ly Thai To keisara sem gerði Hanoi að höfuðborg ríkis síns árið 1010. Að svo búnu er snæddur hádegisverður á ljómandi góðu veitingahúsi sem nefnist Koto. Eftir matinn er stutt ökuferð til hins fræga Musteris bókmenntanna sem var eini háskóli landsins frá 1076 og fram á 19. öld. Loks er farið í gönguferð um elsta borgarhverfi Hanoi þar sem í 36 þröngum götum má fá nasasjón af hefðbundnum lífsvenjum Víetnama. Gönguferðinni lýkur á markaðnum Hang Be. Síðast á dagskránni er svo Vatnsbrúðuleikhús sem er einstakt listform, iðkað í Norður-Víetnam. (M, H)

  6. 0611. nóvember 2023Hanoi

    Kl. 8.30, að loknum morgunverði, er lagt af stað í skoðunarferð um Hanoi. Þá er haldið til eins frægasta staðar borgarinnar sem er fangelsið Hoa Lo. Þar geymdu Frakkar félaga úr andspyrnuhreyfingunni um miðja 20. öld, en síðar, í Víetnamstríðinu á 7. áratugnum og fram til 1975, sátu þar aðallega bandarískir stríðsfangar, þeir sem sluppu lifandi þegar sprengjuflugvélar þeirra voru skotnar niður yfir Norður-Víetnam. Fólkinu í Hanoi var ekki sérlega hlýtt til Bandaríkjamanna, sem fleygðu meira magni af sprengjum yfir borgina og nágrenni hennar en sem nam öllum sprengjum sem allir stríðsaðilar notuðu í seinni heimsstyrjöldinni. Bandarísku flugmennirnir kölluðu Hoa Lo „Hanoi Hilton“. Næst er snæddur hádegisverður á góðum veitingastað sem heitir Rue Lamblot. Síðan er haldið til torgsins Ba Dinh þar sem Ho Chi Minh lýsti yfir sjálfstæði Víetnams árið 1945. Þaðan göngum við að húsinu sem Ho Chi Minh bjó í á árunum 1958 til 1969 og stýrði hreyfingunni sem hann lifði ekki að sjá vinna fullnaðarsigur yfir her Suður-Víetnam og Bandaríkjanna, árið 1975. Í grenndinni stendur svo Einnar súlu Búddahofið sem reist var árið 1049 og er meðal frægustu fornminja Víetnams. Þessari ferð lýkur um kl. 15 svo gott ráðrúm gefst til að skoða sig um á eigin spýtur eða njóta lífsins á annan hátt það sem eftir lifir þessa síðasta dags í Hanoi. (M, H)

  7. 0712. nóvember 2023Halong flói – Sigling hefst

    Brottför frá hótelinu kl. 8:30. Haldið til strandar, ekið um búsældarlegar sveitir og síðasta spölinn yfir nýja brú sem er sú lengsta í Suðaustur Asíu. Komið til hafnarbæjarins þangað sem við verðum sótt um kl. 12:00. Þar erum við boðin velkomin með tedrykkju í skála á hafnarbakkanum áður en haldið er með skipsbáti út að skemmtiferðasnekkjunni Dragon Legend þar sem gist verður næstu tvær nætur. Þegar innskráningu er lokið og fólk hefur fengið sína einkakáetu verður borinn fram hádegisverður kl. 13:30, á meðan, siglt er til Bai Tu Long flóa sem er hluti af Halong flóa, einu af undrum veraldar og á heimsminjaskrá UNESCO. Eftir hádegisverð er farið á árabátum til að heimsækja fiskiþorpið Vung Vieng, þar sem heilsað er upp á heimafólk og m.a. skoðaður fljótandi skóli og fiskeldi. Kalksteinsklettarnir sem gnæfa hvarvetna upp úr haffletinum eru tilkomumikil og heillandi sjón. Þetta svæði er tiltölulega ósnortið í samanburði við fjölfarnari hluta Halong Bay, því fáir skemmtiferðarbátar sigla enn sem komið er þessa leið. Að heimsókninni lokinni er farið aftur um borð í snekkjuna og við höfum góðan tíma til að slaka á fram að kvöldverði. Kl. 19:00 er ljúffengur veislumatur er borinn fram í notalegur og rómantísku umhverfi, matbúinn af færu fagfólki um borð. Eftir matinn er tilvalið að njóta flóastemmningarinnar uppi á efra dekki, reyna sig við að veiða smokkfisk eða horfa á kvikmynd í veitingasalnum. Einnig er hægt að panta nudd. (M, H, K)

  8. 0813. nóvember 2023Sigling um Bai Tu Long flóa

    Kl. 6:00 er boðið upp á Tai Chi æfingar á sólardekki Dragon Legend meðan sól rís úr sæ. Morgunsvalinn er hressandi. Morgunverður er snæddur úti á dekki þar sem stórbrotið útsýnið blasir við allt um kring. Og skipið siglir af stað. Fyrst er siglt til Cong Dam og á leiðinni gefst tækifæri til að virða fyrir sér einstaka náttúrufegurð Bai Tu Long flóa. Kl. 10:00 er boðið upp á kajak-siglingu um neðanjarðarlón og þjóðgarðinn Cong Dam. Kl. 12:00 er hádegisverður á fallegri strönd, síðan farið aftur í snekkjuna kl. 15:00. Þá er tilvalið að slaka á í sjávarlauginni um borð eða sækja matreiðslunámskeið á meðan siglt er til Cong Do svæðisins. Kl. 19:00 er snæddur ljúffengur kvöldverður og á eftir er upplagt að njóta stemningarinnar uppi á sólardekkinu þar sem er m.a. bar með alls kyns drykkjum. (M, H, K)

  9. 0914. nóvember 2023Hanoi–Saigon

    Kl. 06:00 er aftur boðið upp á hressandi og endurnærandi Tai Chi meðan flóinn skartar sinni morgunfegurð. Eftir það er morgunverður borinn fram á dekkinu. Kl. 08:30 förum við í land á Hon Co eyju til að skoða Thien Canh Son hellinn. Þegar komið er aftur um borð kl. 10:00 er kominn tími til að taka saman pjönkur sínar og skrá sig út. Hádegisverðarhlaðborð er borið fram kl. 10:30 á meðan við siglum aftur til hafnar. Við komum í land kl. 11:30 og ökum í rútunni til Yen Duc í Dong Trieu héraði, sem er dæmigert víetnamskt sveitaþorp. Þar stoppum við um stund til að kynnast hefðum og menningu svæðisins. Rútan flytur okkur síðan til Hanoi-flugvallar. Flogið með VN255 kl. 16:00 til Saigon og lent þar kl. 18:15. Ekið frá flugvelli til Grand Hotel í hjarta þessarar stærstu borgar Víetnam, með um níu milljónir íbúa. Grand Hotel er glæsilegt fimm stjörnu hótel sem stendur við suðurenda aðalgötunnar Dong Khoi sem á nýlendutíma Frakka hét Catinat og gengur enn undir því nafni í daglegu tali innfæddra, rétt eins og „Saigon“ er fólki munntamara en opinbera heitið „Ho Chi Minh City“ sem oft er skammstafað HCMC. Kvöldverður á vönduðu veitingahúsi sem heitir Hoa Tuc. (M, dögurður, K)

  10. 1015. nóvember 2023Saigon

    Kl. 8.30 að loknum morgunverði er lagt af stað í skoðunarferð um þessa glæsilegu, gömlu höfuðborg Franska Indókína, sem gekk undir nafninu „París Austurlanda“. Fyrst er skoðuð frægasta bygging borgarinnar, Pósthúsið, sem líklega var teiknað af Marie-Alfred Foulhoux en er oft eignað Gustave Eiffel sem hannaði Eiffel-turninn. Pósthúsið var reist á árunum 1886–1891. Í grenndinni stendur Notre Dame dómkirkjan, einnig byggð af Frökkum undir lok 19. aldar. Farið í heimsókn í Gialong-höllina, sem hýsir Safn Ho Chi Minh borgar, og fræðst um stormasama sögu hennar. Gengið um „Le Loi“ götu og farið í heimsókn til listamanns sem sérhæfir sig í hefðbundnu ristuþrykki. Hádegisverður snæddur á veitingahúsi sem heitir Viet Village. Þá er gamli markaður miðbæjarins skoðaður, rölt um stræti elsta borgarhlutans og tyllt sér niður til að fá sér hressingu á einhverju af hinum frægu, sjarmerandi kaffihúsum sem prýða staðinn. Að svo búnu er hægt að velja um að láta aka sér heim á hótel eða verða eftir á Ben Thanh markaðnum til að versla og sjá sig um. Aðeins um 10–15 mínútna akstur er heim á Grand Hotel frá markaðnum. (M, H)

  11. 1116. nóvember 2023Cu Chi göngin

    Lagt af stað kl. 8.30 að loknum morgunverði í um rúmlega klukkustundar bílferð norður fyrir borgina að skoða hin frægu Cu Chi göng og eins konar safn mannvirkja og hergagna, eflaust merkilegustu minjar um Víetnam-stríðið sem hægt er að sjá í landinu. Leiðin liggur um fagrar sveitir. Til baka er farið á hraðbáti niður Saigon-ána. Ferðin tekur eina og hálfa klukkustund og báturinn lendir skammt frá hótelinu. Eftir hádegið er hægt að sjá sig um í borginni á eigin spýtur. Margt er að skoða í Saigon, til dæmis ekki fráleitt að bregða sér á Stríðsminjasafnið eða skoða Forsetahöll Suður Víetnam. Þá er ekki úr vegi að fá sér kaffi eða aðra hressingu á 52. hæð Bitexo, hæstu byggingar borgarinnar, þaðan sem útsýnið er einstakt. Um kvöldið gefst kostur á að kynnast hinum víðfræga víetnamska götumat og næturlífið í Saigon undir handleiðslu staðarleiðsögumanns okkar. Þessi ferð er utan dagskrár og ekki innifalin í verðinu. Hún verður nánar kynnt síðar. (M)

  12. 1217. nóvember 2023Cai be–Can Tho

    Kl. 8.30, að loknum morgunverði, er Grand Hotel Saigon kvatt og ekið áleiðis til Mekong-óshólmanna sem eru eitthvert rómaðasta gósenland Asíu. Engar ýkjur eru að þar drjúpi smjör af hverju strái. Eftir ósigur Frakka í orrustunni við Dien Bien Phu árið 1954, sem markaði endalok nýlenduveldis þeirra í Indókína, voru það þung spor fyrir margar franskar fjölskyldur að yfirgefa sveitirnar á Mekong-svæðinu sem í sumum tilfellum höfðu verið heimkynni þeirra kynslóðum saman, og enn í dag hugsa allmargir Frakkar til þessa „heimalands síns“ með sárum söknuði. Á leiðinni til óshólmanna er höfð viðkoma í Cao Dai kirkju, guðshúsi einstakra trúarbragða, eins konar samblands af taóisma, Búddisma og Konfúsíusarhyggju ásamt kristni og íslam, sem margar milljónir manna í Víetnam aðhyllast. Við ökum fyrst til bæjarins Cai Be og fáum þar prívat-júnku til að sigla á um ána. Fyrst heimsækjum við fræga fljótandi markaði nærri bænum. Eftir að komið er aftur á þurrt land skoðum við ýmiss konar heimaframleiðsla svo sem á hrískökum, hrísgrjóna-poppkorni og kókoshnetu-brjóstsykri. Við siglum áfram milli sígrænargrænna og fagurra Mekong-óshólmanna eftir margslungnu neti ótal þveráa, sunda og síkja. Hádegismatur er borinn fram fram á veitingastað á einni eyjunni áður en við förum aftur um borð í júnkuna og siglum í rólegheitum áfram til Vinh Long og virðum á leiðinni fyrir okkur ljúft landslag og friðsælt líf sveitafólksins á Óshólmunum. Síðan er farið í land af júnkunni og stigið upp í bílinn sem flytur okkur til Can Tho sem er mikil myndarborg, höfuðstaður Mekong-svæðisins. Þar gistum við eina nótt, á Victoria Can Tho hótelinu. (M, H)

  13. 1318. nóvember 2023Can Tho–Chau Doc

    Can Tho er háskólaborg sem stendur á mótum þriggja vatnsfalla í landfræðilegri miðju Óshólmanna. Þetta svæði var á miðöldum hluti af heimsveldi Kmera (sem við eigum eftir að kynnast betur í Siem Reap) og enn í dag er verulegur hluti íbúanna af kmerakyni, þ.e. af kambódísku bergi brotinn. Farið kl. 7:30, að loknum morgunverði, á bátum að heimsækja fljótandi markaðinn í Cai Rang. Síðan er siglt um mörg og margvísleg síki þar sem krökkt er af bátum fólks sem kemur úr nærliggjandi sveitum að selja afurðir sínar, aðallega grænmeti og ávexti. Þetta er litríkt mannlíf. Að lokinni þessari kynnisferð er hótel Victoria kvatt og haldið til Chau Doc sem er drjúgur spölur, næstum þriggja tíma akstur. Við skráum okkur inn á Victoria Chau Doc hótelið á bakka Mekong-fljóts, þar sem við gistum næstu nótt, og snæðum hádegisverð þar. Eftir hádegi er farið að skoða „fljótandi hús“ þar sem meðal annars er stunduð fiskirækt sem er gífurlega mikilvægur og ört vaxandi atvinnuvegur á þessum slóðum. (M, H)

  14. 1419. nóvember 2023Chau Doc–Phnom Penh

    Að loknum morgunverði er haldið af stað með hraðbáti frá bryggju Victoria-hótelsins upp Mekong-fljót. Stutt er til landamæra Kambódíu frá Chau Doc. Lent er og dvalið um stund við landamærastöðina þar sem við þurfum að fá stimpil í passana. Þar verðum við að hafa eftirfarandi tiltækt: Vegabréf 36 Bandaríkjadali (í seðlum) á mann Um 5 klst. ánægjuleg sigling er með hraðbátnum til Phnom Penh. Á leiðinni getum við virt fyrir okkur forvitnilegt mannlífið á bökkunum Mekong-fljóts. Afbragðs tækifæri til myndatöku. Komið til höfuðborgar Kambódíu um kl. 13. Borgin stendur á mótum stórfljótanna Mekong og Tonlé Sap. Að lokinni innskráningu á Royal Palace Gate Hotel, sem er frábært 5 stjörnu hótel, rétt hjá konungshöllinni í miðri borginni. Góður tími gefst til að skoða sig um eða njóta lífsins við sundlaug hótelsins. Phnom Penh var álitin ein fegursta borg Franska Indókína. En á tímum ógnarstjórnar Rauðu Kmeranna 1975–1979 voru nær allir íbúarnir reknir út úr borginni með fádæma harðýðgi og hnepptir í þrælkunarvinnu í sveitum. Undanfarna áratugi hefur samt gengið býsna vel að hleypa nýjum krafti í borgarlíf Phnom Penh og er sérlega gaman að ganga þar um göturnar, kíkja á markaði og setjast niður á veröndum kaffihúsa eða góðum veitingastöðum sem enginn skortur er á, einkum á árbakkanum ekki langt frá frá hótelinu okkar. Þetta er heillandi borg, í senn vestræn og asísk, með breiðgötum og háum trjám í röðum meðfram þeim, fögrum pagóðum og glæsilegum byggingum frá nýlendutímanum. (M)

  15. 1520. nóvember 2023Phnom Penh

    Kl. 8.30 að loknum morgunverði er farið að skoða Konungshöllina sem fullgerð var árið 1866 á nýlendutíma Frakka. Við hlið hallarinnar stendur Silfurpagóðan sem dregur nafn af fimm tonnum af skínandi silfri sem lögð voru í gólfið. Upphaflega nafnið er Wat Prakeo sem þýðir Musteri hins smaragðsgræna Búdda. Í hádeginu er snæddur dæmigerður kmeramatur á víðfrægu veitingahúsi sem nefnist Malis. Matreiðslumeistarinn er einn helsti stjörnukokkur Kambódíu, Luu Meng. Eftir hádegið fræðumst við um þann hrylling sem kalla mætti helför kambódísku þjóðarinnar, þegar Pol Pot og Rauðu kmerarnir hans myrtu á tæpum fjórum árum 2,5–3 milljónir landa sinna. Fyrst er heimsótt safn í gömlu skólahúsi, Tuol Sleng, þar sem starfrækt var skelfilegasta fangelsi Rauðu kmeranna, S-21. Því næst höldum við til aftökustaðarins illræmda í Choeung Ek sem umheimurinn kallar Killing Fields upp á ensku. Þar létu ótal margir lífið og er hægt að sjá þarna ýmsar minjar um fórnarlömbin og örlög þeirra, fjöldagrafir og „stúpu“ fulla af hauskúpum. Eftir heimsóknina á þennan óhugnanlega stað er haldið aftur heim á hótelið, og þykir þá kannski einhverjum mál að fá sér hressingu. (M, H)

  16. 1621. nóvember 2023Phnom Penh–Siem Reap

    Kl. 8.40 að loknum morgunverði og eftir að skrá okkur út af Royal Palace Hotel, höldum við út á flugvöll Phnom Penh, fljúgum kl. 11.30 með K6 109 til Siem Reap og lendum þar kl. 12.25. Siem Reap liggur við hlið þess makalausa svæðis þar sem á síðari hluta miðalda stóð stórborg með um milljón íbúum, meðan mannfjöldi helstu borga Evrópu fór varla yfir tvö hundruð þúsund. Þetta var höfuðstaður stórveldis Kmera sem um alllangt skeið náði langt út fyrir það svæði sem nú heitir Kambódía. Angkor Thom var stjórnarsetrið og Angkor Wat aðalmusterið, stærsta guðshús sem fundist hefur í Suðaustur Asíu. Siem Reap er einkar aðlaðandi 150 þúsund manna bær, fallega staðsettur á árbökkum. Þar er ánægjulegt, eftir könnun á fornminjum að morgni, að ganga um eftir hádegið og skoða fagrar byggingar, markaði og litríkt götulíf. Ankor Village Hotel, 4ra stjörnu gististaðurinn okkar, er í gangfæri við miðbæinn þar sem aðalmarkaðurinn og flest veitingahúsin og krárnar eru, ekki síst við „Pub Street“. Hótelið er sérlega aðlaðandi og notalegt, þar er ljómandi góð sundlaug, fagrir garðar og ýmislegt annað sem hjálpar fólki að njóta lífsins. Þennan fyrsta dag í Siem Reap er boðið upp á kvöldverð á glæsilegu veitingahúsi hótelsins. (M, K)

  17. 1722. nóvember 2023Ankor Wat

    Kl. 8.30, eftir morgunverð, er byrjað á að skoða frægasta mannvirki Kambódíu, musterið Angkor Wat, sem reist var á ríkisstjórnarárum Suryavarmans II konungs á fyrri hluta 12. aldar. Angkor Wat mun vera ætlað að tákna fjallið Meru, bústað guðanna. Að innan eru veggir musterisins þaktir höggmyndum og lágmyndum sem endurspegla goðsagnir hindúa og sömuleiðis hetjusagnir af hernaði Suryavarmans konungs. Þá skreyta tvö þúsund Apsara-dansmeyjar musterið. Angkor Wat prýðir nú þjóðfána Kambódíu þar sem hofið þykir táknrænt fyrir þjóðarsálina. Þá er heimsótt annað hof, Ta Prohm, reist nokkrum áratugum á eftir Angkor Wat af Jayavarman VII konungi, undir aldamótin 1200. Ólíkt öðrum fornum byggingum á svæðinu, sem fallin voru í gleymskunnar dá og höfðu nánast orðið frumskóginum að bráð, var ákveðið að leyfa þessu búddahofi að vera áfram nánast í því ástandi sem það fannst í til að sýna hvernig náttúran getur leikið mannanna verk. Ta Prohm hefur verið náttúruleg leikmynd nokkurra ævintýrakvikmynda, þ.á.m. The Tomb Raider með Angelinu Jolie. Snæddur hádegisverður á veitingahúsinu The Square 24, áður en ekið er aftur heim á hótelið. Síðdegið frjálst. (M, H)

  18. 1823. nóvember 2023Angkor Thom – Bayon

    Kl. 8:30 að loknum morgunverði er farið að skoða hina fornu höfuðborg Kmeraveldisins, Angkor Thom. Hún er umlukt átta metra hárum múr sem myndar rétthyrning. Farið er inn um hið mikilfenglega Suðurhlið, úr steini með höggmyndum af fílum og fjórum ógnarstórum andlitum. Beggja vegna hliðsins eru 54 guðir eða djöflar sem halda í hina heilögu Naga-slöngu. Síðan er haldið til Bayon-hofsins sem stendur nákvæmlega í miðpunkti Angkor Thom. Þessi fagra bygging frá 12. öld skartar 54 turnum sem tákna 54 skattlönd hins mikla stórveldis Kmera. Hádegisverður snæddur á Malis sem er glæsilegasti veitingastaðurinn í Siem Reap (sama keðja og Malis í Pnom Penh) áður en haldið er heim á hótel. Síðdegið frjálst en þeir sem vilja eiga völ á skipulagðri kvöldferð. (M,H)

  19. 1924. nóvember 2023Siem Reap–Singapúr

    Eftir morgunverð og útskráningu af Hotel Angkor Village er ekið á flugvöllinn og haldið með SQ 163 kl. 10.40 til Singapúr. Farangurinn er skráður alla leið til Íslands. Lent í Singapúr kl. 14.15. Þar sem flugið til Kaupmannahafnar er ekki fyrr en upp úr miðnætti er hægt er að velja milli þess að hvílast á Changi-flugvelli eða skreppa á eigin vegum inn í borgina.

  20. 2025. nóvember 2023Heimferð

    Flogið frá Singapúr til Kaupmannahafnar með SQ 352 kl. 00.30 og lent á Kastrup-flugvelli kl. 06.35. Síðan er flogið með FI205 kl. 13.05 til Íslands. Lending í Keflavík er kl. 15.30. Ferðaskrifstofan VITA gefur út farseðla og EXO Travel hefur milligöngu um alla ferðaþjónustu í Víetnam og Kambódíu. Örnólfur hannaði ferðina og skipulagði, valdi áfangastaði, gististaði og ferðartilhögun. Fararstjórar í þessari ferð verða Örnólfur Árnason og Margrét Örnólfsdóttir. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.

Gisting

  • The Peninsula Excelsior★★★★Singapúr
  • The Ann Hotel★★★★Hanoi
  • The Orchid Cruise★★★★★Sigling
  • Grand Hotel★★★★★Saigon
  • Victoria Can Tho★★★★Can Tho
  • Victoria Chau Doc★★★★Chau Doc
  • Royal Palace Gate Hotel★★★★★Phnom Penh
  • Ankor Village Hotel★★★★Siem Reap

Verð

Verð á mann795.000 kr
Staðfestingargjald100.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli170.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Allt flug, einnig innanlandsflug í Víetnam og Kambódíu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er í lýsingu (M, H og K) M=Morgunverður, H=hádegisverður, K=kvöldverður. Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Allur akstur í Asíu í loftkældum langferðabílum. Fararstjórn: Örnólfur Árnason og Margrét Örnólfsdóttir. Enskumælandi staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum. Bátsferðir sem getið er í ferðarlýsingu. Ferð með hraðbáti frá Chau Doc til Phnom Penh. Þóknun fyrir hraðafgreiðslu vegabréfsáritunar í Víetnam.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Vegabréfsstimpilgjald $25 við komu til Víetnams og $36 við komu til Kambódíu. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra, c.a. $5 á dag. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Singapúr, Víetnam og Kambódía — 6.–25. nóvember 2023.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 795.000 kr

Senda fyrirspurn