
Ævintýrið byrjar hér
Væntanlegar ferðir
Veldu ferð til að sjá ferðaáætlun, verð og skráningu.
UppseldAlbanía, Kósovó og Norður Makedónía
1. – 15. september 2026
UppseldBalí, Kómodó og Flores
5. – 25. október 2026
UppseldSingapúr, Víetnam og Kambódía
3. – 23. nóvember 2026
Fáein pláss lausGrænhöfðaeyjar og Lissabon
14. – 28. janúar 2027
Fáein pláss lausGrænhöfðaeyjar og Lissabon
28. jan – 11. feb 2027
Fáein pláss lausSingapúr, Víetnam og Kambódía
10. feb – 2. mars 2027

Grænhöfðaeyjar og Lissabon
11. – 25. febrúar 2027

Balí, Kómodó og Flores
15. mars – 3. apríl 2027
UppseldJapan
1. – 16. apríl 2027
Fáein pláss lausJapan
18. apríl – 3. maí 2027
Hlustaðu og lestu
Útvarpsþættir og greinar Örnólfs
Um okkur
Um Ævintýraferðir Örnólfs
Við sérhæfum okkur í fjölbreyttum og innihaldsríkum ævintýraferðum þar sem hver dagur býður upp á eitthvað nýtt og spennandi – fegurð, fróðleik, skemmtun og lífsnautn. Allt skipulag, svo sem val á leiðsögumönnum, áfangstöðum, hótelum, veitingahúsum og annarri þjónustu, byggir á langri reynslu og þekkingu og er í sífelldri endurskoðun til að hámarka upplifun þátttakenda. Hver ferð á að skilja eitthvað eftir og það er staðföst trú okkar að þannig ferðalög breyti lífi okkar og viðhorfum.


Fararstjórinn
Örnólfur Árnason
Örnólfur er landsþekktur rithöfundur og menningarfrömuður sem hefur starfað sem blaðamaður, gagnrýnandi, leikskáld, þýðandi, stjórnandi listahátíða og kvikmyndaframleiðandi, svo eitthvað sé upp talið. Auk þess að vera afkastamikill á menningarsviðinu hefur Örnólfur fengist við fararstjórn um áratuga skeið, var til að mynda yfirfararstjóri hjá ferðaskrifstofunni Útsýn í mörg ár á 8. áratugunum í árdaga sólarlandaútrásar okkar Íslendinga. Hann hefur um árabil skipulagt ævintýraferðir til spennandi og framandi slóða, s.s. til Suðaustur-Asíu, til Indlands og á sögufrægar slóðir máranna í Marrokkó og Andalúsíu. Útvarpsþáttaraðir Örnólfs fyrir Ríkisútvarpið, þar sem hann lýsir ferðum sínum vítt og breitt um heimsbyggðina, m.a. til Andalúsíu, Marokkó, Rómönsku Ameríku og Suðaustur-Asíu, hafa notið mikilla vinsælda og má nálgast þættina hér á síðunni, ásamt öðru áhugaverðu efni.
