




Marokkó og máraslóðir Andalúsíu
7.–24. mars 2022
Ferðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
017. mars 2022Keflavík – Malaga
Flogið með FI204 kl. 07:45 frá Keflavík til Kaupmannahafnar og síðan áfram kl. 13:30 með SK583 til Málaga og lent kl. 17:15. Ekið á Aparthotel Monarque Sultan í Marbella og gist þar.

028. mars 2022Marbella – Fez
Morgunverður á hótelinu. Eftir útskráningu er lagt af stað um hádegisbil áleiðis til Malaga með viðdvöl í fjallabænum Mijas þaðan sem frábært útsýni er yfir Costa del Sol, bærinn skoðaður og snædd „paella“ á veitingastaðnum La Terraza áður en haldið er áfram til flugvallar. Flogið með marokkóska flugfélaginu Air Arabia kl. 18:25 og lent í Fez kl 19:30 á staðartíma (flugtími 1:05 klst Innskráning og síðar kvöldverður á Hotel Heritage Menzeh Zalagh Luxe (4****) í Fez þar sem gist verður næstu tvær nætur.

039. mars 2022Fez – Meknes
Kynnisferð um Fez, hina fornu höfuðborg Marokkó og helstu miðstöð menningar landsins. Þarna er líklega elsti háskóli í heimi sem enn starfar. „Medínan“, umlukt múrum, er á minjaskrá UNESCO og almennt talin best varðveitta miðaldaborg veraldar í íslömskum sið. Hún er iðandi af lífi, fjölskrúðugri verslun og handverki sem skemmtilegt er að ganga um og skoða. Eftir hádegisverð á hótelinu er ekið til Meknes (63 km) og sú merka borg skoðuð, m.a. borgarhliðið „Bab al Mansour“ sem frægt er fyrir fegurð. Haldið aftur til Fez og gist þar.

0410. mars 2022Fez – Marrakech
Haldið af stað til Marrakech að loknum morgunverði í lengstu dagleið ferðarinnar. Ekið yfir Mið-Atlasfjöll um Ifrane og Azrou og loks Benimellal þar sem snæddur verður hádgegisverður á Restaurante Paris. Kvöldverður og gisting á Riad Luzia (4****) í Marrakech næstu 3 nætur.

0511. mars 2022Marrakech
Að loknum morgunverði er farið i kynnisferð um borgina. Marrakech sigraði fyrir nokkrum árum í atkvæðagreiðslu Tripadvisor um besta áfangastað í víðri veröld. Segja má að í Marrakech hafi maður annan fótinn í nútímanum og hinn í fornöld. Gamli bærinn minnir á Þúsund og eina nótt en nýi borgarhlutinn, steinsnar frá, er stórglæsilegur með frönskum breiðgötum og formfögrum mannvirkjum í rauðbrúnum jarðarlit í stíl við forna múrinn sem umlykur borgina. Skammt fyrir sunnan gnæfa svo Atlasfjöllin með snævi þakta tinda sem ramma inn þessa tilkomumiklu mynd. Skoðuð eru ýmis sögufræg mannvirki svo sem Koutoubia-moskan, grafhýsi Saadi-konungsættarinnar, Bahia-höllin og síðast en ekki síst Djema el Fna, eitt magnaðasta torg í víðri veröld. Eftir hádegisverð á hótelinu ræður hver sinni dagskrá. Marrakech er ævintýraheimur. Það er til dæmis makalaus upplifun að ganga um í litríku og glaðværu völundarhúsi medínunnar.

0612. mars 2022Jardin Majorelle
Eftir morgunverð er farið í kynnisferð um borgina og m.a. skoðaðir Majorelle-garðarnir undurfögru og íslamskt lærdómssetur (medersa) frá 14. öld kennt við Ben Youssef, hið stærsta í Marokkó. Hádegisverður snæddur á týpísku veitingahúsi, Al Baraka. Eftir hádegið ræðu hver sínum ferðum.

0713. mars 2022Marrakech – Rabat
Að loknum morgunverði er hótelið kvatt og haldið til Casablanca (244 km) sem er langstærsta borg Marokkó. Ekið um miðborgina til að berja það markverðasta augum, ekki síst moskuna sem kennd er við Hassan II, föður núverandi konungs, sem er stærsta íslamska guðshús í heimi að undanskildri moskunni í Mecca. Hádegisverður snæddur í Casablanca á veitingahúsinu Les Fleurs og síðan er haldið áfram til Rabat (92 km), höfuðborgar landsins. Skráð sig inn á Hotel Farah (5*****) og kvöldverður snæddur þar.

0814. mars 2022Rabat – Tangier
Eftir morgunmat og útskráningu af hótelinu er farið í stutta skoðunarferð um Rabat áður en haldið er áfram til Tangier (251 km). Hádegisverður snæddur á leiðinni, á fiskveitingahúsinu Casa Garcíaí fallegum strandbæ sem nefnist Asilah. Við komuna til Tangier er farið í stutta skoðunarferð um borgina. Kvöldverður og gisting á Hotel Hilton Garden Inn (4****) í Tangier þessa síðustu nótt í Marokkó.

0915. mars 2022Tangier – Sevilla
Að loknum morgunverði á hótelinu er haldið út á flugvöll og flogið til Malaga með Air Arabia kl. 11.25 og lent þar eftir rúmlega klukkustundarflug. Rúta bíður okkar á Malagaflugvelli og flytur okkur til Sevilla, höfuðborgar Andalúsíu. Á leiðinni er boðið upp á hádegisverð á týpískum, andalúsískum veitingastað. Skráð sig inn á Hotel Al Andalus Palace (4****) Sevilla, þar sem gist verður næstu tvær nætur. Kvöldverður á hótelinu.

1016. mars 2022Sevilla
Eftir morgunmat er farið í kynnisferð um borgina. Helstu staðir eru svæði Spænsk-amerísku sýningarinnar 1929, Gullturninn, Garður Maríu Lovísu, Ameríkutorg, Murillo-garðarnir, Jerez-hliðið, Santa Cruz hverfið og Dómkirkjan fræga, sú stærsta á Spáni. Að loknum hádegisverði á týpískum, andalúsískum veitingastað, El Cabildo, eru hinar fornu konungshallir mára skoðaðar og síðan farið í útsýnissiglingu á fljótinu Gadalquivír sem rennur gegnum miðja borgina. Kvöldverður á hótelinu. Hægt er að panta fyrir þá sem vilja sæti á stórkostlega flamenkóskemmtun t.d. í Patio Andaluz del Embrujo.

1117. mars 2022Mosque-Cathedral of Córdoba – Cathedral of Córdoba
Eftir morgunverð er Hótel Al Andalus Palace kvatt og ekið áleiðis til Cordoba (141 km). Þar var helsta stjórnarsetur og menningarmiðstöð máraveldisins Al-Andalus sem drottnaði yfir meginhluta Pýreneaskaga frá því snemma á 8. öld og fram á miðja 13. öld. Heimsóknin hefst með því að ganga yfir Puente Romano, Rómversku brúna sem lögð var yfir Guadalquivir á 1. öld f. Kr. og skoða frægasta mannvirki Cordoba, La Mezquita, helsta guðshúsi máranna. Þar til moska Hassans II reis í Casablanca var La Mezquita næststærsta moska í heimi. Því næst er gengið um nærliggjandi götur gamla borgarhlutans, m.a. gyðingahverfið, Barrio Judío, og litið á bænahús gyðinga, La Sinagoga. Snæddur er hádegisverður á frægu veitingahúsi, Mesón La Mezquita, áður en haldið er áfram til Granada (204 km). Kvöldverður á Hotel Alixares (4****) í undurfögru umhverfi rétt við Alhambra höllina og gist þar næstu 2 nætur.

1218. mars 2022Granada
Eftir morgunverð er skoðað víðfrægasta mannvirki Spánar, Alhambra, konungshöll máraríkisins sem hélt velli tvær og hálfa öld eftir að kristnir herir sigruðu Cordoba og Sevilla. Einnig er gengið um hina fögru skrúðgarða mára á Generalife-hæðinni. Eftir hádegið er farið um miðbæinn og m.a. heimsótt Konunglega kapellan ásamt grafhýsi kaþólsku konungshjónanna, Ferdínands Aragóníukonungs og Ísabellu drottningar af Kastilíu, sem sameinuðu ríki sín, ráku burt márana árið 1492 og gerðu Spán að heimsveldi eftir landvinningana í Ameríku. Kvöldverður á hótelinu. Eftir það gefst þeim sem vilja kostur á að skoða gamla márahverfið, Albayzin, og fara á sígaunaflamenkó.

1319. mars 2022Granada – Marbella
Eftir morgunverð er hótelið í Granada kvatt og haldið áleiðis til Malaga en höfð smá viðdvöl í bænum Fuente Vaqueros á hinni grösugu sléttu La Vega til að heimsækja fæðingarbæ Federicos Garcia Lorca og skoða húsið þar sem þetta ástsælasta skáld Spánar sleit barnsskonum. Síðan er ekið til Marbella (180 km) og skráð sig inn á Aparthotel Monarque Sultán sem er glæsilegur og aðlaðandi gististaður á „Gullnu mílunni“ svokölluðu, eftirsóttasta svæðinu í Marbella. Stutt er niður á baðströndina og sömuleiðis eru miðbærinn og höfnin í Marbella í gangfæri. Þarna verður dvalið næstu 5 nætur. Á hótelinu er auðvelt að láta fara vel um sig. Þar eru bæði sundlaugar og „spa“. Innifalið í hóteldvölinni er hálft fæði, þ.e. morgunverður og kvöldverður. Þeir sem vilja hafa eitthvað fleira fyrir stafni en að njóta hvíldar og makinda í Marbella hafa um margt hnýsilegt að velja, t.d. að skreppa til Malaga (59 km) og skoða Picasso-safnið í fæðingarbæ meistarans og kannski fá sér tapas á torgum og útiskenkjum í sundum miðbæjarins. Eða skjótast til fjallabæjarins Ronda (36 km) sem er einn tilkomumesti staður Spánar. Ronda er vagga nautaatsins og þar er elsti nautahringur Spánar. Þá eru aðeins 73 km til Gíbraltar frá Marbella. Örnólfur þekkir Costa del Sol býsna vel, bjó þar árum saman, og er hann fús að leiðbeina fólki eða aðstoða við hvaðeina.

1424. mars 2022Marbella – Keflavík
Að loknum morgunverði er hótelið í Marbella kvatt og haldið til Malagaflugvallar Flogið með SK6202 kl 11:30 til Kaupmannahafnar. Lent á Kastrup kl. 15:15. Haldið áfram til Keflavíkur kl. 20:05 með FI213. Lent þar kl. 22:30.

Gisting
- Aparthotel Monarque Sultan★★★★Marbella
- Hotel Heritage Menzeh Zalagh Luxe★★★★Fez
- Riad Luzia★★★★Marrakech
- Hotel Farah★★★★★Rabat
- Hotel Hilton Garden★★★★Tangier
- Hotel Al Andalus Palace★★★★Sevilla
- Hotel Alixares★★★★Granada
- Aparthotel Monarque Sultán★★★★Marbella
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Flug, allar ferðir á landi og sjó sem greint er frá í ferðaáætluninni, gisting og máltíðir sem þar eru upp taldar, allur aðgangseyrir, staðarleiðsögumenn, sérstakur fylgdarleiðsögumaður í Marokkó og annar á Spáni, fararstjórn Örnólfs allan tímann, Hálft fæði á hótelinu í Marbella síðustu dagana. (Yfirleitt morgunmatur og kvöldverður, en hægt er að víxla hádegisverði og kvöldverði.)
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Marokkó og máraslóðir Andalúsíu — 7.–24. mars 2022.
