← Allar ferðir

Japan

6. – 21. apríl 2026

Ferðin er uppseld
16 dagarLengd ferðar
18 áfangarFerðaáætlun
1.049.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 016. apríl 2026Flug til Tókýó

    Flogið með Finnair AY0992 kl.08.35 frá Keflavík og lent í Helsinki kl.15.00. Síðan áfram með AY0061 kl.18:30 til Tókýó.

  2. 027. apríl 2026Tókýó

    Lent á Haneda flugvelli kl.13.50. Ekið til Tókýó og innskráning á hótel Tokyo Bay Shiomi Prince þar sem gist er næstu fjórar nætur. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á veitingastað nálægt hótelinu. (K)

  3. 038. apríl 2026Tókýó

    Að loknum morgunverði er farið í skoðunarferð um Tókýó. Við byrjum á að ganga í gegnum Memory Lane og að Metropolitan Government Building sem er hár skýjakljúfur í Shinjuku hverfinu með góðu útsýni yfir borgina. Eftir sameiginlegan hádegismat er farið í Meiji Jingu, helgidóm shinto-trúar, sem var byggt árið 1920 og helgað Meiji keisara og Shoken, keisaraynju hans. Ef tími gefst göngum við í gegnum Yoyogi-garð, einn stærsta almenningsgarð Tókýó, og sjáum þar vonandi kirsuberjatré í blóma. (M, H)

  4. 049. apríl 2026Tókýó

    Að loknum morgunverði er farið á Þjóðminjasafnið í Tókýó, elsta þjóðminjasafn landsins sem hýsir margar þjóðargersemar og helstu menningarminjar Japans. Við göngum síðan um Ueno almenningsgarðinn og borðum saman hádegismat. Þá förum við í Shibuya-hverfið þar sem við sjáum fjölförnustu gatnamót heims. (M, H)

  5. 0510. apríl 2026Dagsferð til Fuji-fjalls

    Að loknum morgunverði er farið með rútu í ferð upp í Fuiji-fjall. Fyrst er stoppað á „5. stöð“ þaðan sem er frábært útsýni í um 2.300 metra hæð yfir sjávarmáli. Hádegisverður er snæddur á veitingahúsi þar. Því næst er ekið að Kawaguchi Oishi stöðuvatninu við rætur Fuji og um samnefndan þjóðgarð þar sem best þykir að taka myndir af Fuji. Þá er heimsóttur hinn fagri Arakurayama Sengen garður áður en haldið er aftur heim á hótelið (um kl. 17.30). (M, H)

  6. 0611. apríl 2026Kanazawa

    Farið til Kanazawa með Shinkansen hraðlest. Kanazawa var heimaborg Maeda samuræ-fjölskyldunnar og ein af fáum borgum Japans sem slapp við sprengingar í seinni heimsstyrjöldinni. Borgin endurspeglar því vel samuræ-menningu landsins. Við byrjum á að heimsækja Kenrokuen, japanskan landslagsgarð, sem þykir vera einn af þremur fallegustu landslagsgörðum landsins. Í garðinum skoðum við einnig Seison-kaku, villu sem einn samuræhöfðingi Maeda-fjölskyldunnar byggði handa móður sinni. Gist næstu tvær nætur í Kanazawa á Intergate Hotel Kanazawa. (M, H)

  7. 0712. apríl 2026Dagsferð til Shirakawago

    Að loknum morgunverði förum við til Shirakawago sem er svæði í fjöllum Gifu-héraðs. Svæðið er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna vegna sérstakra húsa með stráþökum sem tíðkaðist að byggja þar, en sum þessara húsa eru meira en 250 ára gömul. Að lokum skoðum við Nagamachi Samuræ-hverfið. (M, H)

  8. 0813. apríl 2026Kýótó

    Þá er haldið til Kýótó. Eftir að við skráum okkur inn á Rihga Gran Hotel Kyoto, þar sem við gistum næstu 6 nætur, göngum við um borgarhlutann Gion, gamla geishu-hverfið. (M, H)

  9. 0914. apríl 2026Kýótó

    Eftir morgunmat förum við í Arashiyama bambusskóginn og skoðum m.a. garðinn við Tenryuji, búddahof Zen-búddisma, sem er í blóma á þessum tíma og Okochi Sanso villuna, byggingu í hinum hefðbundna japanska wabi-sabi stíl þar sem leikarinn Okochi Denjiro bjó. Við borðum saman hádegismat og síðan er ferðinni heitið í Kinkakuji, „gullhofið“, en hofinu tilheyrir einnig fallegur japanskur garður. (M, H)

  10. 1015. apríl 2026Kýótó

    Eftir morgunmat förum við í Kiyomizudera, eitt frægasta búddahof Japans. Síðan skoðum við Ginkakuji, „silfurhofið“, og göngum heimspekiveginn þar sem er að finna alls konar búðir, kaffihús, hof og helgidóma, og vonandi kirsuberjatré í blóma. (M, H)

  11. 1116. apríl 2026Dagsferð til Nara

    Eftir morgunmat förum við með rútu til borgarinnar Nara, en hún var höfuðborg Japans á undan Kýótó, frá árinu 710–794. Í Nara er búddahofið Todaiji, eitt mikilvægasta búddahof Japans, sem geymir stærstu bronsstyttu heims af Búdda. Nara er einnig fræg fyrir dádýr sem ráfa nánast óhindruð um borgina. (M, H)

  12. 1217. apríl 2026Kýótó

    Eftir morgunmat höldum við áfram skoðunarferð okkar um Kýótó. Við förum í Fushimi Inari helgidóminn, sem einn af þekktustu stöðum Kýótó, frægur fyrir mörg þúsund rauð hlið sem á japönsku kallast torii. Eftir það tekur við frjáls tími þar sem ferðalangar geta skoðað sig frekar um í Kýótó á eigin vegum. (M, H)

  13. 1318. apríl 2026Dagsferð til Hiroshima

    Við byrjum þennan dag fyrr en venjulega, kl. 7:30, þar sem ferðinni er heitið til Hiroshima með Shinkansen hraðlest. Þegar til Hiroshima er komið förum við með rútu í Friðargarðinn og sjáum þar m.a. rústir Genbaku Dome, einu byggingarinnar á svæðinu sem ekki eyðilagðist þegar kjarnorkusprengjunni var varpað á borgina, 6. ágúst 1945. Síðan er safnið um kjarnorkusprengjuna skoðað. Við borðum saman hádegismat og sláum síðan á léttari strengi með því að skoða Itsukushima helgidóminn, sem er á eyju rétt fyrir utan Hiroshima, og sjáum fræga torii-hliðið í hafinu. Í eftirmiðdaginn er snúið aftur til Kýótó. (M, H)

  14. 1419. apríl 2026Kýótó – Osaka

    Eftir morgunmat kl. 9.30 ökum við til Osaka, þriðju stærstu borgar Japans, þar sem við gistum síðustu nóttina á Rihga Royal Hotel Osaka. Við byrjum á að skoða Osaka kastala, einn merkasta kastala Japans, sem var mikilvæg miðstöð við sameiningu landsins á 16. öld. Eftir það er sameiginlegur hádegisverður. Síðdegið er frjálst og margt hægt að hafa fyrir stafni, enda borgin er lífleg og heillandi. Þar sem þetta er síðasti heili dagurinn í Japan snæðum við saman kveðjukvöldverð á veitingahúsi nærri hótelinu. (M, H, K)

  15. 1520. apríl 2026Osaka

    Þennan síðasta dag þarf að skrá sig út af hótelinu fyrir hádegið, en farangurinn verður geymdur þar fram að brottför til flugvallar kl.18.00. Frjáls tími fram að brottför. Osaka er fræg fyrir glæsilegar verslanir og mikla matarmenningu. Flogið með Finnair AY0068 kl.22.25 frá Osaka Kansai flugvelli áleiðis til Helsinki. (M)

  16. 1621. apríl 2026Heimflug

    Lent á Vantaa flugvelli í Helsinki kl.05.30 og haldið áfram kl.07.10 með AY0091 til Íslands og lent á Keflavíkurflugvelli kl.07.50.

  17. 17Fararstjórn

    Leiðsögn og fararstjórn, ásamt Örnólfi, annast Unnur Bjarnadóttir. Unnur hefur búið bæði í Japan og Suður-Kóreu þar sem hún tók m.a. þátt í fornleifauppgreftrum. Hún er með meistarapróf frá University College London í asískri fornleifafræði og í þvermenningarlegum fræðum frá Heidelberg háskóla og starfar sem stundakennari við japönsku- og kóreskudeildir Háskóla Íslands. Fyrir nokkrum árum gaf Unnur út bækurnar Ævintýri frá Kóreu og Japan og Goðsögur frá Kóreu og Japan og nýlega skrifaði hún grein um japanska hækuljóðlist í óðfræðitímaritið SÓN, sem birtir ritrýndar rannsóknargreinar og umræðugreinar á sviði ljóðlistar, skáldskaparmála og bragfræði.

  18. 18Praktískar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Staðfestingargjald er óafturkræft nema hætta þurfi við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta dagskrá með stuttum fyrirvara ef þess gerist þörf af óviðráðanlegum ástæðum. Einnig áskiljum við okkur rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, og hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Fararstjórar í þessari ferð eru Unnur Bjarnadóttir og Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.

Gisting

  • Tokyo Bay Shiomi Prince Hotel ★★★★Tókýó
  • Hotel Intergate Kanazawa ★★★★Kanazawa
  • Rihga Gran Hotel Kyoto ★★★★Kýótó
  • Rihga Royal Hotel Osaka, Vignette Collection★★★★Osaka

Verð

Verð á mann1.049.000 kr
Staðfestingargjald150.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli150.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Allt flug, akstur og lestarferðir sem getið er um í ferðalýsingu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er í ferðalýsingu: M = morgunverður / H = hádegisverður / K = kvöldverður. Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Fararstjórn: Unnur Bjarnadóttir og Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Japan — 6. – 21. apríl 2026.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 1.049.000 kr

Senda fyrirspurn