




Japan
23. apríl – 8. maí 2026
Ferðin er uppseldFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
0123. apríl 2026Flug til Tókýó
Flogið með Finnair AY0992 kl.08.35 frá Keflavík og lent í Helsinki kl.15.00. Síðan áfram með AY0061 kl.18:30 til Tókýó.
0224. apríl 2026Tókýó
Lent á Haneda flugvelli kl.13.50. Ekið til Tókýó og innskráning á Grand Prince Hotel Shin Takanawa (5*) þar sem gist er næstu fjórar nætur. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á veitingastað nálægt hótelinu. (K)

0325. apríl 2026Tókýó
Að loknum morgunverði er farið í skoðunarferð um Tókýó. Við byrjum á að ganga í gegnum Memory Lane og að Metropolitan Government Building sem er hár skýjakljúfur í Shinjuku hverfinu með góðu útsýni yfir borgina. Eftir sameiginlegan hádegismat er farið í Shibuya-hverfið þar sem við sjáum fjölförnustu gatnamót heims. . (M, H)

0426. apríl 2026Tókýó
Að loknum morgunverði er farið á Þjóðminjasafnið í Tókýó, elsta þjóðminjasafn landsins sem hýsir margar þjóðargersemar og helstu menningarminjar Japans. Við göngum síðan um Ueno almenningsgarðinn og borðum saman hádegismat. Eftir það tekur við frjáls tími þar sem ferðalangar geta skoðað sig frekar um í Tókýó á eigin vegum. (M, H)

0527. apríl 2026Dagsferð til Fuji-fjalls
Að loknum morgunverði er farið með rútu í ferð upp í Fuiji-fjall. Fyrst er stoppað á „5. stöð“ þaðan sem er frábært útsýni í um 2.300 metra hæð yfir sjávarmáli. Hádegisverður er snæddur á veitingahúsi þar. Því næst er ekið að Kawaguchi Oishi stöðuvatninu við rætur Fuji og um samnefndan þjóðgarð þar sem best þykir að taka myndir af Fuji. Þá er heimsóttur hinn fagri Arakurayama Sengen garður áður en haldið er aftur heim á hótelið (um kl. 17.30). (M, H)

0628. apríl 2026Kanazawa
Farið til Kanazawa með Shinkansen hraðlest. Kanazawa var heimaborg Maeda samuræ-fjölskyldunnar og ein af fáum borgum Japans sem slapp við sprengingar í seinni heimsstyrjöldinni. Borgin endurspeglar því vel samuræ-menningu landsins. Við byrjum á að heimsækja Kenrokuen, japanskan landslagsgarð, sem þykir vera einn af þremur fallegustu landslagsgörðum landsins. Í garðinum skoðum við einnig Seison-kaku, villu sem einn samuræhöfðingi Maeda-fjölskyldunnar byggði handa móður sinni. Gist næstu tvær nætur í Kanazawa á ANA Crowne Plaza Kanazawa by IHG (4*). (M, H)

0729. apríl 2026Dagsferð til Shirakawago
Að loknum morgunverði förum við til Shirakawago sem er svæði í fjöllum Gifu-héraðs. Svæðið er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna vegna sérstakra húsa með stráþökum sem tíðkaðist að byggja þar, en sum þessara húsa eru meira en 250 ára gömul. Að lokum skoðum við Nagamachi Samuræ-hverfið. (M, H)

0830. apríl 2026Kýótó
Þá er haldið til Kýótó. Eftir að við skráum okkur inn á Rihga Royal Hotel Kyoto (4*), þar sem við gistum næstu 5 nætur, göngum við um borgarhlutann Gion, gamla geishu-hverfið. (M, H)

091. maí 2026Kýótó
Eftir morgunmat förum við í Arashiyama bambusskóginn og skoðum m.a. garðinn við Tenryuji, búddahof Zen-búddisma, sem er í blóma á þessum tíma og Okochi Sanso villuna, byggingu í hinum hefðbundna japanska wabi-sabi stíl þar sem leikarinn Okochi Denjiro bjó. Við borðum saman hádegismat og síðan er ferðinni heitið í Kinkakuji, „gullhofið“, en hofinu tilheyrir einnig fallegur japanskur garður. (M, H)

102. maí 2026Kýótó
Eftir morgunmat förum við í Kiyomizudera, eitt frægasta búddahof Japans. Að loknum sameiginlegum hádegisverði, göngum við heimspekiveginn þar sem er að finna alls konar búðir, kaffihús, hof og helgidóma. (M, H)
113. maí 2026Kýótó
Eftir morgunmat höldum við áfram skoðunarferð okkar um Kýótó. Við förum í Fushimi Inari helgidóminn, sem einn af þekktustu stöðum Kýótó, frægur fyrir mörg þúsund rauð hlið sem á japönsku kallast torii. Eftir það tekur við frjáls tími þar sem ferðalangar geta skoðað sig frekar um í Kýótó á eigin vegum. (M, H)

124. maí 2026Dagsferð til Hiroshima
Við byrjum þennan dag fyrr en venjulega, kl. 7.30, þar sem ferðinni er heitið til Hiroshima með Shinkansen hraðlest. Þegar til Hiroshima er komið förum við með rútu í Friðargarðinn og sjáum þar m.a. rústir Genbaku Dome, einu byggingarinnar á svæðinu sem ekki eyðilagðist þegar kjarnorkusprengjunni var varpað á borgina, 6. ágúst 1945. Síðan er safnið um kjarnorkusprengjuna skoðað. Við borðum saman hádegismat og sláum síðan á léttari strengi með því að skoða Itsukushima helgidóminn, sem er á eyju rétt fyrir utan Hiroshima, og sjáum fræga torii-hliðið í hafinu. Í eftirmiðdaginn er snúið aftur til Kýótó. (M, H)

135. maí 2026Kýótó – Himeji – Osaka
Við kveðjum Kýótó. Á leiðinni til næsta áfangastaðar okkar, Osaka, skoðum við Himeji kastala, sem er fallegasti kastali Japans og bæði á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og á sérstökum lista yfir þjóðargersemar Japans. Kastalinn var fyrst byggður um miðja 14. öld en hefur staðið óbreyttur frá því snemma á 17. öld, þrátt fyrir miklar sprengingar seinni heimsstyrjaldarinnar og stóran jarðskjálfta árið 1995. Í Japan eru aðeins 12 kastalar sem enn standa í upprunalegri mynd. Himeji kastali er oft kallaður hegrakastalinn þar sem byggingin er sögð líkjast fuglinum hegra með útbreidda vængi. Því næst ökum við til Osaka, þriðju stærstu borgar Japans, þar sem við gistum síðustu tvær næturnar á Rihga RoyalHotel Osaka, Vignette Collection (5*). (M, H)

146. maí 2026Osaka
Eftir morgunmat kl. 9.30, hefjum við daginn á stuttri gönguferð eftir götunni Dotonbori og sjáum einnig yfirbyggðu verslunargötuna Shinsaibashi, en báðar þessar götur eru meðal frægustu staða Osaka. Eftir gönguferðina er dagurinn frjáls og margt hægt að hafa fyrir stafni, enda borgin lífleg og heillandi. Þar sem þetta er síðasti heili dagurinn í Japan snæðum við saman kveðjukvöldverð á veitingahúsi nærri hótelinu. (M, H, K)

157. maí 2026Heimflug hefst
Þennan síðasta dag þarf að skrá sig út af hótelinu fyrir hádegið, en farangurinn verður geymdur þar fram að brottför til flugvallar kl.18.00. Frjáls tími fram að brottför. Osaka er fræg fyrir glæsilegar verslanir og mikla matarmenningu. Flogið með Finnair AY0068 kl.22.25 frá Osaka Kansai flugvelli áleiðis til Helsinki. (M)
168. maí 2026Heimkoma
Lent á Vantaa flugvelli í Helsinki kl.05.30 og haldið áfram kl.07.10 með AY0091 til Íslands og lent á Keflavíkurflugvelli kl.07.50.
17Fararstjórn
Leiðsögn og fararstjórn (ásamt Örnólfi) annast Unnur Bjarnadóttir. Unnur hefur búið bæði í Japan og Suður-Kóreu þar sem hún tók m.a. þátt í fornleifauppgreftrum. Hún er með meistarapróf frá University College London í asískri fornleifafræði og í þvermenningarlegum fræðum frá Heidelberg háskóla og starfar sem stundakennari við japönsku- og kóreskudeildir Háskóla Íslands. Hún er nú einnig að hefja doktorsnám í asískri fornleifafræði við Reading háskóla í Englandi. Fyrir nokkrum árum gaf Unnur út bækurnar Ævintýri frá Kóreu og Japan og Goðsögur frá Kóreu og Japan og nýlega skrifaði hún grein um japanska hækuljóðlist í óðfræðitímaritið SÓN, sem birtir ritrýndar rannsóknargreinar og umræðugreinar á sviði ljóðlistar, skáldskaparmála og bragfræði. Unnur fór sem fararstjóri ásamt Örnólfi í fyrstu ferð Ævintýraferða til Japans, vorið 2025, og var sú ferð afar vel heppnuð.
18Praktískar upplýsingar
Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Staðfestingargjald er óafturkræft nema hætta þurfi við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta dagskrá með stuttum fyrirvara ef þess gerist þörf af óviðráðanlegum ástæðum. Einnig áskiljum við okkur rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, og hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Fararstjórar í þessari ferð eru Unnur Bjarnadóttir og Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.
Gisting
- Grand Prince Hotel Shin Takanawa★★★★★Tókýó
- ANA Crowne Plaza Kanazawa by IHG★★★★Kanazawa
- Rihga Royal Hotel Kyoto★★★★Kýótó
- Rihga RoyalHotel Osaka, Vignette Collection★★★★★Ósaka
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Allt flug, akstur og lestarferðir sem getið er um í ferðalýsingu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er í ferðalýsingu: M = morgunverður / H = hádegisverður / K = kvöldverður. Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Fararstjórn: Unnur Bjarnadóttir og Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Japan — 23. apríl – 8. maí 2026.
