← Allar ferðir

Japan

18. apríl – 3. maí 2027

Fáein pláss laus
16 dagarLengd ferðar
18 áfangarFerðaáætlun
1.099.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 0118. apríl 2027Flug til Tókýó

    Flogið með Finnair AY0992 kl.08.35 frá Keflavík og lent í Helsinki kl.15.00. Síðan áfram með AY0061 kl.18:30 til Tókýó.

  2. 0219. apríl 2027Tókýó

    Lent á Haneda flugvelli kl.13.50. Ekið til Tókýó og innskráning á Grand Prince Hotel Shin Takanawa (5*) þar sem gist er næstu fjórar nætur. Um kvöldið er sameiginlegur kvöldverður á veitingastað nálægt hótelinu. (K)

  3. 0320. apríl 2027Tókýó

    Að loknum morgunverði er farið í skoðunarferð um Tókýó. Við byrjum á að ganga í gegnum Memory Lane og að Metropolitan Government Building sem er hár skýjakljúfur í Shinjuku hverfinu með góðu útsýni yfir borgina. Eftir sameiginlegan hádegismat er farið í Shibuya-hverfið þar sem við sjáum m.a. fjölförnustu gatnamót heim. (M, H)

  4. 0421. apríl 2027Tókýó

    Að loknum morgunverði er farið á Þjóðminjasafnið í Tókýó, elsta þjóðminjasafn landsins, sem hýsir margar þjóðargersemar og helstu menningarminjar Japans. Við göngum síðan um Ueno almenningsgarðinn og borðum saman hádegismat. Eftir það tekur við frjáls tími þar sem ferðalangar geta skoðað sig frekar um í Tókýó á eigin vegum. (M, H)

  5. 0522. apríl 2027Fuji-fjall

    Að loknum morgunverði er farið með rútu í ferð upp í Fuiji-fjall. Fyrst er stoppað á „5. stöð“ þaðan sem er frábært útsýni í um 2.300 metra hæð yfir sjávarmáli. Hádegisverður er snæddur á veitingahúsi þar. Því næst er ekið að Kawaguchi Oishi stöðuvatninu við rætur Fuji og um samnefndan þjóðgarð þar sem best þykir að taka myndir af Fuji. Þá er heimsóttur hinn fagri Arakurayama Sengen garður áður en haldið er aftur heim á hótelið (um kl. 17.30). (M, H)

  6. 0623. apríl 2027Kanazawa

    Eftir útskráningu og morgunverð á hótelinu liggur leiðin til Kanazawa með Shinkansen hraðlest. Kanazawa var heimaborg Maeda samuræ-fjölskyldunnar og ein af fáum borgum Japans sem slapp við sprengingar í seinni heimsstyrjöldinni. Borgin endurspeglar því vel samuræ-menningu landsins. Við byrjum á að heimsækja Kenrokuen, japanskan landslagsgarð, sem þykir vera einn af þremur fallegustu landslagsgörðum landsins. Í garðinum skoðum við einnig Seison-kaku, villu sem einn samuræhöfðingi Maeda-fjölskyldunnar byggði handa móður sinni. Gist næstu tvær nætur í Kanazawa á ANA Crowne Plaza Kanazawa by IHG (4*). (M, H)

  7. 0724. apríl 2027Shirakawago

    Að loknum morgunverði er haldið í dagsferð til Shirakawago í fjöllum Gifu-héraðs. Svæðið er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna vegna sérstakra húsa með stráþökum sem tíðkaðist að byggja þar, og eru sum þessara húsa meira en 250 ára gömul. Að því loknu skoðum við Nagamachi Samuræ-hverfið. (M, H)

  8. 0825. apríl 2027Kýótó

    Þá er haldið til Kýótó. Kýótó, sem er ein fegursta og þekktasta borg Japans, var höfuðborg landsins í rúm þúsund ár. Gist næstu 5 nætur í Kýótó á Rihga Royal Hotel Kyoto (4*). (M, H)

  9. 0926. apríl 2027Kýótó

    Eftir morgunmat á hótelinu förum við í Arashiyama bambusskóginn og skoðum m.a. garðinn við Tenryuji, búddahof Zen-búddisma, sem er í blóma á þessum tíma og Okochi Sanso villuna, byggingu í hinum hefðbundna japanska wabi-sabi stíl þar sem leikarinn Okochi Denjiro bjó. Við borðum saman hádegismat og síðan göngum við Heimspekiveginn þar sem er að finna alls konar búðir, kaffihús, hof og helgidóma. (M, H)

  10. 1027. apríl 2027Kýótó

    Eftir morgunmat á hótelinu höldum við skoðunarferð okkar um Kýótó áfram. Fyrst heimsækjum við Kinkakuji, „gullhofið“, en hofinu tilheyrir einnig fallegur japanskur garður. Að því loknu skoðum við Kiyomizudera, eitt frægasta búddahof Japans. Eftir sameiginlegan hádegisverð er gengið um borgarhlutann Gion, gamla geishu-hverfið. (M, H)

  11. 1128. apríl 2027Kýótó

    Eftir morgunmat er farið að heimsækja Fushimi Inari helgidóminn, sem er einn af þekktustu stöðum Kýótó og frægur fyrir mörg þúsund rauð hlið sem á japönsku kallast torii. Að því loknu er frjáls tími þar sem ferðalangar geta skoðað sig frekar um í Kýótó á eigin vegum. (M)

  12. 1229. apríl 2027Hiroshima

    Við byrjum þennan dag fyrr en vanalega, kl. 7.30, þar sem ferðinni er heitið til Hiroshima með Shinkansen hraðlest. Þegar til Hiroshima er komið er farið í Friðargarðinn þar sem m.a. má sjá rústir Genbaku Dome, einu byggingarinnar sem stóð eftir þegar kjarnorkusprengjunni var varpað á borgina, 6. ágúst 1945. Síðan er farið á safnið um kjarnorkusprengjuna. Við borðum saman hádegismat og sláum svo á léttari strengi með því að skoða Itsukushima helgidóminn, á eyju rétt fyrir utan Hiroshima, og sjáum þar hið fræga torii-hliðið í hafinu. Í eftirmiðdaginn er haldið aftur til Kýótó. (M, H)

  13. 1330. apríl 2027Ósaka

    Eftir útskráningu og morgunmat á hótelinu er haldið með rútu til borgarinnar Ósaka, en þangað er um klukkustundar akstur. Innskráning á Rihga Royal Hotel Osaka, Vignette Collection (5*). Undir hádegi förum við saman í stutta gönguferð eftir götunni Dotonbori og sjáum einnig yfirbyggðu verslunargötuna Shinsaibashi, en báðar þessar götur eru meðal frægustu staða Osaka. Eftir gönguferðina er dagurinn frjáls og margt hægt að hafa fyrir stafni, enda borgin lífleg og heillandi og rómuð fyrir ríkulega matarmenningu. (M, H)

  14. 141. maí 2027Ósaka

    Frjáls dagur í Ósaka sem hægt er að nýta til að skoða sig betur um, t.d. heimsækja Ósaka-kastala, fara í dagsferð til nágrannaborgarinnar Nara eða versla. Þar sem þetta er síðasti heili dagurinn í Japan snæðum við saman kveðjukvöldverð á veitingahúsi nærri hótelinu. (M, K)

  15. 152. maí 2027Heimflug hefst

    Þennan síðasta dag þarf að skrá sig út af hótelinu fyrir hádegið, en farangurinn verður geymdur þar fram að brottför til flugvallar kl.18.00. Frjáls tími fram að brottför. Osaka er fræg fyrir glæsilegar verslanir og ríkulega matarmenningu. Flogið með Finnair AY068 kl 22:15 frá Osaka Kansai flugvelli til Helsinki. (M)

  16. 163. maí 2027Heimkoma

    Flogið með Finnair AY991 kl. 7:10 og lent í Keflavík kl. 7.50.

  17. 17Fararstjórn

    Leiðsögn og fararstjórn annast Unnur Bjarnadóttir og Jon Thunkvist. Unnur hefur búið bæði í Japan og Suður-Kóreu þar sem hún tók m.a. þátt í fornleifauppgreftrum. Hún er með meistarapróf frá University College London í asískri fornleifafræði og í þvermenningarlegum fræðum frá Heidelberg háskóla og starfar sem stundakennari við japönsku- og kóreskudeildir Háskóla Íslands. Hún er nú einnig í doktorsnám í asískri fornleifafræði við Reading háskóla í Englandi. Fyrir nokkrum árum gaf Unnur út bækurnar Ævintýri frá Kóreu og Japan og Goðsögur frá Kóreu og Japan og nýlega skrifaði hún grein um japanska hækuljóðlist í óðfræðitímaritið SÓN, sem birtir ritrýndar rannsóknargreinar og umræðugreinar á sviði ljóðlistar, skáldskaparmála og bragfræði. Unnur stundar nú doktorsnám í asískri fornleifafræði við Reading háskóla í Englandi. Jon Thunqvist er sænskur blaðamaður sem bjó og starfaði um langt árabil í Japan, þar sem hann var m.a. fréttaritar sænska ríkisútvarpsins SVT. Auk þess að fást við leiðsögumennsku, heldur Jon úti hlaðvarpinu Japanpodden þar sem finna má vandaðar og stórfróðlegar umfjallanir um málefni líðandi stundar, stjórnmál og menningu í Japan. Unnur og Jon eru bæði japönskumælandi.

  18. 18Hagnýtar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði frá brottfarardegi. Staðfestingargjald er óafturkræft nema hætta þurfi við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta dagskrá með stuttum fyrirvara ef þess gerist þörf af óviðráðanlegum ástæðum. Einnig áskiljum við okkur rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, og hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Fararstjórar í þessari ferð eru Unnur Bjarnadóttir og Jon Thunqvist.

Gisting

  • Grand Prince Hotel Shin Takanawa★★★★★Tókýó
  • ANA Crowne Plaza Kanazawa by IHG★★★★Kanazawa
  • Rihga Royal Hotel Kyoto★★★★Kýótó
  • Rihga RoyalHotel Osaka, Vignette Collection★★★★★Ósaka

Verð

Verð á mann1.099.000 kr
Staðfestingargjald150.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli150.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Allt flug, akstur og lestarferðir sem getið er um í ferðalýsingu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er í ferðalýsingu: M = morgunverður / H = hádegisverður / K = kvöldverður. Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Fararstjórn: Unnur Bjarnadóttir og Jon Thunqvist. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Japan — 18. apríl – 3. maí 2027.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 1.099.000 kr

Senda fyrirspurn