




Grænhöfðaeyjar og Lissabon
14. – 28. janúar 2027
Fáein pláss lausFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
0114. janúar 2027Flug til Grænhöfðaeyja
Flogið frá Keflavík með FI954 kl. 8.30 og lent í Lissabon kl.12.50. Flogið áfram með TP1543 kl.20.45 og lent í höfuðborginni Praia kl.00.05. Gist á Hotel Oasis Praiamar (4*) næstu 5 nætur.
0215. janúar 2027Praia
Þennan fyrsta dag í höfuðborginni Praia verður gamli miðbærinn Plateau, sem er að stofni til frá 16. öld, skoðaður með staðarleiðsögumanni. Þar er forsetahöllinn, margar stjórnarráðsbyggingar, fjöldi verslana og veitingahúsa, og líflegur borgarmarkaður þar sem konurnar ráða ríkjum. Þingvöllur Grænhöfðaeyja má segja að sé fótboltavöllur við miðbæinn. Þar var sjálfstæði eyjanna lýst yfir 5. júlí 1975. Tvær baðstrendur með ágætum veitingastöðum eru í næsta nágrenni við hótelið þar sem hægt er að hafa það verulega notalegt. Sjórinn er tær og volgur, ströndin vel vöktuð og merki segja til um hvar öruggt er að synda. Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður með tónlistaratriði frá heimamönnum, en óhætt er að fullyrða að tónlistin sé Grænhöfðingjum nánast í blóð borin. (M, K)

0316. janúar 2027Tarrafal
Næst stærsta borgin á Santiago-eyju er Tarrafal, í um 2ja klst. akstursfjarlægð frá Praia. Á leiðinni verður komið við í Serra Malagueta þjóðgarðinum og einnig skoðaðar alræmdar fangabúðir, sem fasistastjórnin í Portúgal lét reisa 1939 að þýskri fyrirmynd, þar sem pólitískir fangar voru geymdir. Gengið um Tarrafal og endað á ströndinni sem er sú besta á eyjunni. Þar eru margir góðir veitingastaðir og við snæðum hádegisverð á einum þeirra. (M, H)

0417. janúar 2027Listamannahverfið og Quintál da Música
Þennan dag er boðið upp á gönguferð um listamannahverfið í Praia, Terra Branca. Eitt helst einkenni Grænhöfðaeyja eru stórar og litríkar veggmyndir sem hvarvetna prýða mannvirki. Um kvöldið er völ á kvöldverði og tónleikum á "Mekka" morna-tónlistarinnar, Quintal da Música, þar sem Cesária Évora var á sínum tíma skærasta stjarnan og söng reglulega, þegar hún var ekki á tónleikaferðalögum um heimsbyggðina. Tónleikar fylgja á eftir kvöldverðinum og eru innifaldir fyrir gesti veitingastaðarins. (M)

0518. janúar 2027Ciudad Velha
Dagsferð til Ciudad Velha (Gömlu borgarinnar) sem er sögulega merkur staður. Þarna varð til fyrsta byggð Evrópumanna sunnan Sahara. Upp á hæðinni fyrir ofan þessa litlu borg er mikilúðlegt virki sem var reist á 17. öld til varnar sjóræningjum, þar sem við stoppum fyrst í heimsókn okkar til Ciudad Velha. Á aðaltorgi borgarinnar var þrælamarkaður, enda var þrælaverslun ábatasamasta atvinnugreinin og undirstaða efnahags Cabo Verde í um þrjár aldir. Við göngum elstu götuna, Rua Banana, skoðum rústir fyrstu kirkjunnar og snæðum hádegisverð í einum af hinum frábæru veitingastöðum við höfnina, áður en við höldum aftur heim til Praia. Eftirmiðdagur er frjáls en fararstjórar geta bent fólki á áhugaverða staði að skoða eða til að slaka á þennan síðasta dag okkar í Praia. Fyrir þá sem vilja kíkja í verslanir þá er aðalverslunarhverfið í göngufæri við hótelið. (M, H)

0619. janúar 2027Praia – Mindelo
Útskráning á Hotel Oasis Praiamar. Við kveðjum Praia og Santiago og fljúgum með flugfélagi Grænhöfðaeyja í u.þ.b. 50 mín. norður til borgarinnar Mindelo, sem er á eynni São Vicente. Innskráning á Hotel Ouril Mindelo (4*) þar sem við dveljum næstu fimm nætur. Mindelo er afskaplega falleg, lítil borg, fræg fyrir ríkulegt tónlistar- og menningarlíf sitt og stærstu og glæsilegustu kjötkveðjuhátíð Grænhöfðaeyja sem ár hvert laðar tugþúsundir að til að taka þátt í gleðinni. (M)
0720. janúar 2027Mindelo
Kl. 9:00, eftir morgunverð á hótelinu, er lagt af stað í gönguferð um miðbæ Mindelo með staðarleiðsögumanni. Skoðaðir verða áhugaverðir staðir í borginni, s.s. hin litríka Avenida Marginal, bæjar- og fiskmarkaðurinn og Belém turninn. Þá er farið með rútu spottakorn til bæjarins Lazareto, þaðan sem er stórkostlegt útsýni, m.a. til fjallsins Monte Cara sem er eitt af 7 náttúruundrum Grænhöfðaeyja. Næst liggur leiðin til Doze Voltas, sem er einskonar völundarhús úr sandi í uppþornuðum vatnsfarvegi við rætur Monte Cara. Þar er ævintýralegt að ganga um og mælt með að vera í lokuðum skóm. São Pedro er sjarmerandi lítið fiskimannaþorp sem komið verður við í áður en haldið er aftur til Mindelo. Síðast á dagskrá er heimsókn í Veðurfræðisafnið, en skoðunarferðinni líkur um kl. 13. (M)

0821. janúar 2027Santo Antão
Dagsferð til nágrannaeyjarinnar Santo Antão. Siglt í býtið með ferju frá Mindelo til Santo Antão, sem margir telja fegursta Grænhöfðaeyja. Þetta er þægileg klukkutíma sigling í svalandi hafgolunni. Stigið á land í Porto Novo þaðan sem keyrt er upp í fjöllin. Vegurinn liggur alla leið upp á tind mikilfenglegs fjallgarðs í um 1.800 m hæð, þaðan sem er óviðjafnanlegt útsýni til allra átta. Þá er haldið niður á norðurhluta eyjarinnar þar sem við tekur gjörólíkt landslag, með iðgrænum dölum fullum af sykurreyr, bananatrjám og öðrum hitabeltisgróðri. Snæddur hádegisverður á veitingahúsi í einum þessara frjósömu dala, auk þess sem komið er við í fiskimannaþorpinu Ponta de Sol og á fleiri áhugaverðum stöðum, áður en siglt er til baka til Mindelo síðdegis. (M, H)

0922. janúar 2027Mindelo
Frjáls dagur í Mindelo. Í miðbæ Mindelo er fjöldi afbragðs veitingastaða og lifandi tónlist ómar á hverju götuhorni. Rétt við miðbæinn, í göngufæri við hótelið, er falleg baðströnd en einnig er ágætur sundlaugargarður á hótelinu. (M)

1023. janúar 2027Mindelo
Þennan síðasta dag okkar í Mindelo er engin skiplögð dagskrá og hægt að nota tímann til að njóta lífsins, skoða sig frekar um á eigin vegum eða kíkja í búðir. Fararstjórar eru eftir sem áður boðnir og búnir að leiðbeina fólki og aðstoða um hvaðeina. (M)

1124. janúar 2027Flug til Lissabon
Útskráning af Hotel Oasis Porto Grande og brottför til flugvallar fyrir hádegi. Flogið með TP1558 kl.13.30 og lent í Lissabon kl.18.30. Gist á Hotel Lisboa Plaza (4*) næstu 4 nætur, sem er indælt boutique hótel í hjarta borgarinnar. (M)
1225. janúar 2027Lissabon
Við hefjum daginn með stuttri gönguferð með fararstjórum í gegnum borgina. Þau sem vilja fara svo í púrtvínssmökkun, en púrtvínið er hvergi betra en í Portúgal. Síðdegis er skoðunarferð um borgina með tuk-tuk. Þessi ferðamáti er bæði skemmtilegur og þægilegur þar sem margar götur og hverfi í Lissabon eru ekki aðgengilegar stórum rútubílum. Farið verður um gamla miðbæinn og m.a. skoðaður kastalinn frægi sem gnæfir yfir borgina, dómkirkjan, þjófamarkaðurinn o. fl. markvert. (M)

1326. janúar 2027Lissabon
Frjáls dagur í Lissabon. Hægt er að kynnast borginni upp á eigin spýtur með fjölbreyttum hætti – fótgangandi, með neðanjarðarlest, en ekki síst með sporvögnum, sem hlykkjast um þröngar göturnar í gamla bænum. Fararstjórar mun fara með þeim sem hafa áhuga á QUAKE, hið stórbrotna og marg verðlaunaða jarðskjálftasafn. Þau sem kjósa geta snætt saman kvöldverð og notið tónlistar á góðum fado-stað í gamla bænum sem fararstjórarnir skipuleggja. (M)

1427. janúar 2027Lissabon
Þennan síðasta heila dag ferðarinnar er hver á sínum vegum, en fararstjórar eru boðnir og búnir að leiðbeina og ráðleggja um hvaðeina, hvort sem fólk vill versla, heimsækja söfn eða annað. Um kvöldið snæðir hópurinn svo saman á veitingastað í nágrenni hótelsins. (M, K)

1528. janúar 2027Heimferð
Útskráning af Hotel Lisboa Plaza um hádegi og ferðatöskur settar í geymslu fram að brottför til flugvallar kl.18.00. Flogið heim með FI579 kl.21.20 og lent í Keflavík kl.01.50. (M)
16Fararstjórar
Hjónin Magnús R. Einarsson og Kristín Jóhannsdóttir eru þaulreyndir fararstjórar og sannkallaðir heimshornaflakkarar. Þau eru heimavön á Grænhöfðaeyjum og í Portúgal og Magnús, sem er landsþekktur útvarps- og tónlistarmaður, hefur myndað sterk tengsl við margt fremsta tónlistarfólk eyjanna. Kristín og Magnús búa í Vestmannaeyjum þar sem Kristín veitir gosminjasafninu Eldheimum forstöðu.

17Nokkrir fróðleiksmolar um Grænhöfðaeyjar
Grænhöfðaeyjar er 10 eyja klasi í Atlandshafinu undan strönd Vestur-Afríku. Við heimsækjum þrjár eyjar, sem hver um sig hefur sín sérkenni – Santiago geymir fjölda sögulegraa minja og höfuðborgina Praia, São Vicente er mikil menningareyja þar sem árlega er haldin stórkostleg kjötkveðjuhátíð og Santo Antão er einstök náttúru- og útivistarparadís. Morna-tónlistin sem Cesária Évora gerði heimsfræga, er alltumlykjandi á Grænhöfðaeyjum, með sínum mjúka ryþma og seiðandi söng. Við búum svo vel að fararstjórarnir hafa myndað mikil og góð tengsl við helstu músíkanta Grænhöfðaeyja og tónlistarunnendur eiga því gott í vændum. Hjálpsemi og vingjarnlegt viðmót Grænhöfðingja er rómað og gestkomandi upplifa "no stress" lífstílinn sem einkennir samfélagið. Grænhöfðaeyjar eru lausar við þá spillingu og ættbálkaerjur sem ríkja annars í Afríku, glæpatíðni er afar lág og ferðamenn eru velkomnir alls staðar. Þjóðarrétturinn kallast Cachupa, hljómar næstum eins og kjötsúpa. Rétturinn er ljúffeng blanda af baunum, grænmeti, kjöti eða fiski. Grænhöfðaeyjar er eldfjallasvæði og mynduðust á svipaðan hátt og Ísland. Eina virka eldstöðin er á eyjunni Fogo, en þar gaus síðast árið 2014. Gjaldmiðill Grænhöfðaeyja er Escudos. Verðlag er okkur vesturlandabúum afar hagstætt, sem dæmi má nefna að leigubílaferð innanbæjar í Praia, sama hversu stutt eða langt er ekið, kostar eiginlega alltaf það sama, í kringum 200–300 kr. Fjölbreytt og ríkuleg tónlistarupplifun er eitt af því sem einkennir þessa ferð, bæði á Grænhöfðaeyjum og í Lissabon. Annar fararstjóranna, Magnús R. Einarsson, er að auki landsþekktur tónlistarmaður og ferðast aldrei langt án hljóðfæris. Það er því nokkuð öruggt að gripið verði í gítar þegar tilefni gefst og jafnvel blásið til samsöngs.
18Hagnýtar upplýsingar
Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir ferðadagsetningar. Staðfestingargjald er óafturkræft nema ferðaskrifstofa þurfi að hætta við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart Evru, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, en hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið.
Gisting
- Hotel Oasis Praiamar★★★★Praia, Grænhöfðaeyjar
- Hotel Ouril Mindelo★★★★Mindelo, Grænhöfðaeyjum
- Hotel Lisboa Plaza, ★★★★Lissabon, Portúgal
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Flug og flugvallarskattar. Gisting með morgunverði á fjögurra stjörnu hótelum, 10 nætur á Grænhöfðaeyjum og 4 nætur í Lissabon. Allur akstur milli flugvalla og hótela. Allar skoðunarferðir skv. ferðalýsingu. Máltíðir sem tilgreindar eru í ferðalýsingu. Allur aðgangseyrir að stöðum sem heimsóttir eru í kynnisferðum. Bátsferð frá São Vicente til Santo Antão. Íslensk fararstjórn og viðvera allan tímann. Staðarleiðsögn enskumælandi sérfræðinga.
Ekki innifalið
Ferða- og forfallatrygging. Þjórfé handa staðarleiðsögumönnum. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þátttaka í valfrjálsum viðburðum svo sem: Kvöldverður og tónleikar á Quintal da Música í Praia og kvöldverður og tónleikar á fado-stað í Lissabon.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Grænhöfðaeyjar og Lissabon — 14. – 28. janúar 2027.
