← Allar ferðir

Balí, Kómodó og Flores

7. – 25. október 2024

Fáein pláss laus
19 dagarLengd ferðar
12 áfangarFerðaáætlun
645.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 017. október 2024Keflavík–Balí

    Lagt af stað með FI 204 til Kaupmannahafnar kl. 07.45, þann 7. október, og lent á Kastrup-flugvelli kl. 12.55. Haldið áfram með EK 152 kl. 15.35 og lent í Dubai kl. 23.55. Síðan flogið þaðan með EK 368 kl. 03.25 (8. okt.) og lent á Denpasar-flugvelli á Balí kl. 16.35.

  2. 028. október 2024Úbúd

    Fyrstu 8 dagana er dvalið á ARMA Resort, einhverjum fegursta og notalegasta gististað í bænum Úbúd, sem er miðstöð hindúamenningarinnar á Balí. Úbúd hefur mest seiðmagn allra staða á Balí. Þar er auðvelt að njóta margvíslegra lystisemda og bæta jafnframt einhverju nýju í reynslubankann á hverjum degi. Í gríðarstórum garði ARMA sem unun er að spássera um hefur maður hvarvetna fyrir augum samspil frjálsrar náttúru og heillandi listfengis mannlegrar sköpunar. Í þessu umhverfi ilmar allt af fegurð og góðum smekk. Á ARMA er m.a. stórkostlegt listasafn, Agung Rai Museum of Art (ARMA), sem hefur tvívegis hlotið verðlaun sem besta listasafn landsins í einkaeigu. Dvalargestir hafa ótakmarkaðan aðgang að listasafninu. Agung Rai og kona hans, eigendur ARMA, veita börnum og ungu fólki tækifæri til að þroska hæfileika sína og njóta tilsagnar fremsta listafólks Úbúd í myndlist, tónlist, Balí-dansi o.fl. án nokkurs endurgjalds. Þannig láta þau samfélagið njóta þeirrar velgengni sem þau hafa uppskorið af áratuga starfi, sem þau hófu með tvær hendur tómar. Hjónin njóta gífurlegra vinsælda og virðingar. Þau eru miklir vinir Örnólfs og bjóða Íslendingahópnum ævinlega til glæsilegrar kvöldverðarveislu í útileikhúsi sínu í miðjum garðinum með hljóðfæraslætti og dansatriðum. Auk ljómandi vistlegra hótelherbergja er kostur á gistingu í einkavillum. Athugið að takmarkaður fjöldi af villum er í boði.

  3. 03Lúxusvillur á ARMA

    Á ARMA Resort í Úbúd er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug. Ýmsir frægir gestir hafa notað þetta húsnæði í heimsóknum til Balí, t.d. Desmond Tutu og Barack og Michelle Obama. Aukagjald fyrir hverja villu er 10.000 kr. pr. nótt.

  4. 0416. október 2024Sanúr

    Síðustu 9 dögunum er varið í bænum Sanúr, rétt hjá höfuðborginni Denpasar, á Griya Santrian sem er dásamlegt strandhóteli við fjöruborðið þar sem auðvelt er að njóta lífsins lystisemda. Sanúr er elsti strandbærinn á Balí og hentar vel þeim sem kjósa friðsæld, fagurt umhverfi og vönduð veitingahús fremur en diskótek og háværa bari. Á þessum tíma er veðrið á Balí mjög notalegt, hitinn yfirleitt á bilinu 25–29 C°.

  5. 05Fjórar kynnisferðir

    Innifaldar eru fjórar kynnisferðir og eru tvær þeirra farnar frá Úbúd og tvær frá Sanúr. Dagsetningar kynnisferðanna verða ekki tilkynntar fyrr en síðar, til þess að þær stangist ekki á við þá viðburði sem hópnum kynni að gefast kostur á að upplifa, svo sem brúðkaup eða bálför.

  6. 06Kynnisferð 1 – Úbúd og nágrannabæir

    Lagt af stað að loknum morgunverði kl. 9 og fyrst eru heimsóttir áhugaverðir staðir í Úbúd. Aðeins spölkorn frá ARMA er Apaskógurinn helgi (Holy Monkey Forest). Þar er friðaður griðastaður fyrir stórt samfélag makakí-apa og nokkur forn hindúa-musteri, m.a. „Dauðahofið mikla“, Pura Dalem Agung, tileinkað guðinum Shiva. Síðan er ekinn hringur um miðbæ Úbúd til að glöggva sig á staðnum og þar næst heimsótt sölugalleríi starfandi myndlistarmanna. Úbúd er mesti listamannabærinn á Balí. Þá er haldið suður til steinsmíðabæjarins Batubulan þar sem tækifæri gefst til að sjá steinsmiði að störfum og skoða höggmyndir og styttur. Næst liggur leiðin um bæ þar sem nær allir íbúar fást við gull- og silfursmíðar og hafa gert mann fram af manni um aldir. Við heimsækjum stórt silfursmíðaverkstæði þar sem einnig er hægt að kaupa skartgripi. Þá er tekið hús á fjölskyldu í bænum Batuan til að kynnast dæmigerðri húsaskipan og tilhögun sem einkennir lífshætti og fornar reglur sem fylgt er vandlega enn í dag. Þessu næst er haldið til Mas og Kemenuh, mestu tréskurðarbæja Balí, þar sem hægt er að sjá handverksmenn við iðju sína og skoða stórkostlegt gallerí með stórum og smáum gripum, afrakstri þessa listiðnaðar sem gengið hefur í arf frá kynslóð til kynslóðar gegnum aldirnar. Að loknum hádegisverði á veitingastaðnum Malen, í ljúfu umhverfi við iðgræna hrísgrjónaakra, er á heimleiðinni komið við í virtasta dansskóla Balí þar sem Agung Istri Wirati kennir ungu fólki í garði konungshallarinnar Puri Kanginan, í Peliatan skammt frá ARMA. Nemendurnir stíga m.a. Legong dans fyrir okkur en sá dans þykir þokkafyllstur allra Balídansa.

  7. 07Kynnisferð 2 – Norður til fjalla

    Lagt af stað kl. 9 að loknum morgunverði og ekið í norður til þorpsins Tampaksiring. Fyrst er rölt um matvælamarkað til að kynnast högum almennings í sveitum áður en heimsótt er frægasta vatnshof Balí, Pura Tirta Empul, þangað sem eyjarskeggjar flykkjast á tyllidögum til andlegrar hreinsunar og uppljómunar. Hópnum gefst kostur á að lauga sig í hinu helga uppsprettuvatni og hljóta að því loknu blessun hindúaprests við sérstaka athöfn. Þessu næst er haldið upp á fjallgarðinn mikla þar sem upp úr gnæfa tindar sem ná allt að rúmlega þrjú þúsund metra hæð. Á leiðinni er numið staðar á búgarðinum Cantik þar sem ræktað er kaffi af ýmsum tegundum, te, kakó og fjölmargar aðrar nytjajurtir, meðal annars engifer, ginseng og ótal kryddtegundir. Gestum er meðal annars boðið að prófa framleiðsluna þ.á.m. að smakka hið fræga Luwak- eða „kattarkúkskaffi“, dýrasta kaffi í heimi. Loks er ekið norður til Kintamani og snæddur hádegisverður í hlíðinni þaðan sem undurfagurt útsýni er yfir Batur-vatn, sem er gamall, risastór gígur, og til eldfjallanna beggja vegna vatnsins. Landslagið á bakaleiðinni til Úbúd er tilkomumikið og m.a. er numið staðar í bænum Tegallalang til að skoða hrísgrjónaakra í bröttum suðurhlíðum fjallanna og fræðast um fornt, hugvitsamlegt áveitukerfi Balíbúa, sem nefnist SUBAK, og fleira varðandi búskap á eynni.

  8. 08Kynnisferð 3 – Vestur-Balí

    Þessi ferð er farin um eftirmiðdag til að njóta sólarlagsins við Indlandshaf. Fyrst er haldið norður til Mengwi sem var eitt voldugasta konungsríki Balí á 18. og 19. öld. Þar skoðum við Taman Ayun (Fögrugarða), hof og skrúðgarða konungs, sem er meðal fegurstu staða á Balí. Að því búnu er haldið til strandar til að upplifa sólarlagið við Tanah Lot, frægasta sjávarhof eyjunnar, sem er óefað mest ljósmyndaði staður á Balí. Á heimleiðinni er svo snæddur kvöldverður á sveitakrá.

  9. 09Kynnisferð 4 – Austur-Balí

    Leiðin liggur um borgirnar Gianyar, höfuðborg samnefnds héraðs, og Klungkung og svo austur með suðurströndinni. Fyrst er numið staðar til að skoða strandhofið Pura Goa Lawah við op hellis sem fullur er af leðurblökum. Þaðan er sagt að liggi göng upp í Gunung Agung, Fjallið mikla, eldfjallið fræga sem eyjarskeggjar líta á sem bústað guðanna. Hofið gegnir veigamiklu hlutverki varðandi útfararsiði Balíbúa. Þá er haldið enn lengra austur til Tenganan en það er eitt fimm þorpa frumbyggjanna Bali Aga sem voru fyrir á eyjunni þegar hindúar frá Jövu tóku að flytjast þangað fyrir rúmum þúsund árum. Þarna má fá nasasjón af menningu sem er um margt ólík menningu annarra Balíbúa. Því næst er haldið enn austar, til Candidasa og Amlapura, höfuðborgar Karangasem-héraðs og síðan upp í hlíð Agung-fjalls (Miklafjalls) til hins undurfagra staðar, Tirta Gangga, sem konungurinn í Karangasem lét útbúa sér til yndis. Þar er snæddur hádegisverður. Á bakaleiðinni er komið við í borginni Semarapura (eða Klungkung), sem fyrr á öldum var höfuðborg voldugasta konungsríkis Balí, og skoðaðar stórmerkilegar stjórnarbyggingar sem reistar voru á blómaskeiði þess. Frægust þeirra er dómshúsið Kertha Gosa.

  10. 1014. október 2024Ferð til eyjanna Flores of Kómódó

    Valkvæð ferð frá Balí austur til indónesísku eyjanna Flores og Kómódó. Flogið til Labuan Bajo á vesturenda Flores og gist þar tvær nætur á Hotel Meruorah (5 stjörnu) á bakka lystisnekkjuhafnarinnar sem er umlukin afar snotrum smáeyjum. Daginn eftir er farið á hraðbáti til Kómódó-eyjar til að skoða forvitnilegar skepnur af einhverri elstu dýrategund plánetu okkar, kómódódreka, sem eru stærstu núlifandi eðlur í heimi. Sú sjóferð tekur mestallan daginn, farið í land á fleiri eyjum, fólki gefinn kostur á að baða sig í sjónum og njóta blæbrigðaríkrar og fallegrar náttúru. Þriðja daginn er flogið aftur til Balí. Hægt er að geyma töskur á Balí meðan á þessari ferð stendur. Verð: 80.000 kr. á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli er 30.000 kr. Innifalið: Flug (1 klst. og 15 mínútur hvora leið), allur akstur til og frá flugvöllum, 2ja nátta gisting á 5 stjörnu hóteli með morgunverði og bátsferð til Kómódó-eyjar með hádegisnesti.

  11. 1125. október 2024Heimflug

    Flogið frá Balí með EK 399 kl. 00.05 hinn 25. október og lent í Dubai kl. 05.00. Síðan með EK 159 kl. 07.30 og lent í Osló kl. 12.35. Og svo áfram með FI 319 kl. 13.50 og lent á Keflavíkurflugvelli kl. 14.45.

  12. 12Praktískar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 60 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Staðfestingargjald er óafturkræft nema hætta þurfi við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verðinu ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi gagnvart USD, en þá væri farþegum auðvitað frjálst að hætta við þátttöku og fengju staðfestingargjaldið endurgreitt. Sækja þarf um vegabréfsáritun til Balí á netinu (e-visa). Nákvæmar leiðbeiningar um umsóknarferlið verða sendar út þegar nær dregur. Ferðaskrifstofan VITA gefur út farseðla. Örnólfur hannar og skipuleggur ferðina, velur áfangastaði, gististaði og alla ferðartilhögun. Fararstjóri er Örnólfur Árnason. Enskumælandi staðarleiðsögumaður er einnig alltaf með í för.

Gisting

  • ARMA ResortÚbúd
  • Hotel Griya SantrianSanúr

Verð

Verð á mann645.000 kr
Staðfestingargjald100.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli140.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flugfargjald frá Íslandi til Balí og til baka. Akstur til og frá flugvelli á Balí. Hótelgisting ásamt morgunverði, á ARMA Resort er einnig boðið upp á síðdegiskaffi með meðlæti. Auk þess þrír kvöldverðir. Fjórar heilsdags kynnisferðir um Balí. Aðgangseyrir að öllum stöðum sem skoðaðir eru. Akstur á tilfallandi viðburði sem færi kann að gefast á að taka þátt í s.s. brúðkaup, musterishátíðir, bálfarir o.s.frv. Hádegisverður í kynnisferðum 1, 2 og 4. Kvöldverður í kynnisferð 3. Enskumælandi fylgdar- og staðarleiðsögumaður, hin ástsæla Ayu Tirta, hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár. Ókeypis far með „hótelskutlu“ ARMA sem ekur hringferð um miðbæinn í Úbúd nokkrum sinnum á dag. Ótakmarkaður aðgangur að hinu margverðlaunaða listasafni Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem geymt er í þremur fögrum húsum í hótelgarðinum. Fararstjórn Örnólfs Árnasonar.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra (c.a. 5 bandaríkjadalir á dag). Aukagjald fyrir „villu“ með einkagarði og sundlaug er 10.000 kr. á dag (5 þús. á mann). Takmarkað framboð er af villum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Balí, Kómodó og Flores — 7. – 25. október 2024.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 645.000 kr

Senda fyrirspurn