← Allar ferðir

Balí

11.–31. mars 2023

Ferðin er uppseld
9 dagarLengd ferðar
8 áfangarFerðaáætlun
595.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 0111. mars 2023Keflavík–Balí

    Flogið með hinu frábæra flugfélagi Emirates með viðkomu í Dubai. (Með Icelandair til Oslo á útleið og frá Kaupmannahöfn á heimleið.) Balí er oftar líkt við paradís en nokkurri annarri eyju í víðri veröld. Loftslagið er gott, fólkið einstaklega ljúft og fallegt. Matur á Balí er ferskur, bragðmikill, fjölbreyttur og girnilegur á diski. Hreinlæti á veitinga- og gististöðum stenst strangar kröfur. Öryggi ferðamanna er afar vel tryggt og heilbrigðisþjónusta ágæt. Verðlag á Balí er mjög hagstætt. Sem dæmi má nefna að vönduð gleraugu kosta a.m.k. hundrað þúsund krónum minna í Úbúd en á Íslandi. Það sem heillar okkur líklega allra mest við Balí er yndisþokki hindúamenningarinnar sem fléttar saman fortíð og nútíð, hátíðir og hversdagslíf á léttan og afslappaðan hátt. undursamleg fegurð gleður auga gestsins hvert sem litið er – náttúran, mannvirkin, skreytingarnar, listaverkin, fólkið og klæðnaður þess. Milli fagurgrænna hrísgrjónaakra á stöllum fjallshlíðanna er ýmist frumskógur með himinháum trjám eða hyldjúp gljúfur, grafin af ám með fossum og flúðum. Upp úr úr öllu þessu gnæfa svo tíguleg eldfjöll.

  2. 0212. mars 2023Sanúr

    Fyrst er dvalið eina viku á dásamlegu strandhóteli Griya Santrian við fjöruborðið í Sanúr þar sem auðvelt er að njóta margra lífsins lystisemda. Balí er sannkölluð vetrarparadís í mars, regntímanum er þá lokið og hitinn stöðugt í kringum 25 stig. Sanúr er elsti strandbærinn á Balí og hentar vel þeim sem kjósa friðsæld, fagurt umhverfi og vönduð veitingahús fremur en diskótek og háværa bari.

  3. 0319. mars 2023Úbúd

    Síðustu 11 dögunum er eytt á ARMA Resort, einhverjum fegursta og notalegasta gististað í bænum Úbúd sem er miðstöð hindúa-menningarinnar á Balí. Í gríðarstórum garði ARMA sem unun er að spássera um hefur maður hvarvetna fyrir augum samspil frjálsrar náttúru og heillandi listfengis mannlegrar sköpunar. Í þessu umhverfi ilmar allt af fegurð og góðum smekk. Á ARMA er m.a. stórkostlegt listasafn, Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem hefur tvívegis hlotið verðlaun ríkisstjórnar Indónesíu sem besta listasafn í einkaeigu. Dvalargestir hafa ótakmarkaðan aðgang að listasafninu. Auk ljómandi vistlegra hótelherbergja er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug (sjá myndir). Ýmsir frægir gestir hafa notað þetta húsnæði í heimsóknum til Balí, allt frá Desmond Tutu til Baracks og Michelle Obama. Athugið að takmarkaður fjöldi af lúxusvillum er í boði. Agung Rai og kona hans, eigendur ARMA, veita börnum og ungu fólki tækifæri til að þroska hæfileika sína og njóta tilsagnar fremsta listafólks Úbúd í myndlist, tónlist, Balí-dansi o.fl. án nokkurs endurgjalds. Þannig láta þau samfélagið njóta þeirrar velgengni sem þau hafa uppskorið af áratuga starfi, sem þau hófu með tvær hendur tómar. Hjónin njóta gífurlegra vinsælda og virðingar. Þau eru miklir vinir Örnólfs og bjóða Íslendingahópnum ævinlega til glæsilegrar kvöldverðarveislu í útileikhúsi sínu í miðjum garðinum, með hljóðfæraslætti og dansatriðum. Úbúd hefur mest seiðmagn allra staða á Balí. Þar er auðvelt að njóta margvíslegra lystisemda og bæta jafnframt einhverju nýju í reynslubankann á hverjum degi. Bæði í Úbúd og Sanúr verður kappkostað að grípa hvert tækifæri sem gefst til að öðlast nána innsýn í líf eyjarskeggja, til dæmis að verða boðið í hátíðarathafnir hindúa til að fagna fullu tungli í bæjarmusterinu, vera við brúðkaup á einkaheimili eða taka þátt í bálför, sem er ein tilkomumesta og fjörugasta trúarathöfn hindúa. Lykillinn að þessu síðasttalda er hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár, hin frábæra Ayu (Ni Gusti Ayu Tirta), sem vinnur hug og hjarta allra, ekki bara okkar aðkomufólksins, heldur njótum við þeirra vinsælda og trausts sem hún nýtur í samfélaginu. Hennar hópar eru þannig velkomnir nánast hvar sem er, jafnvel inn á einkaheimili þar sem hjónavígsla fer fram eða þar sem lík stendur uppi, búið undir bálför. Ayu hefur einstakt lag á að tengja hópana okkar við innfædda, jafnvel æðstu hindúaprestana í hofum, þar sem við heiðingjarnir hljótum blessun þeirra.

  4. 0419. mars 2023Kynnisferð 1

    Vestur-Balí – Tanah Lot og Taman Ayun. Þessi ferð hefst í Sanúr og lýkur í Úbúd. Hún er í senn skoðunarferð og flutningur milli gististaða. Pakka þarf farangrinum, láta hótelstarfsmenn á Griya Santrian sækja hann og fara með fram í anddyrið. Þeir setja töskurnar í sendibíl sem flytur þær til Úbúd. Farangurinn bíður okkar svo á nýja gististaðnum, ARMA Resort, þegar við komum þangað í eftirmiðdaginn. Fyrst er ekið norður, gegnum útjaðar höfuðborgarinnar Denpasar, og síðan út á vesturströndina að Indlandshafi þar sem skoðað er eitt frægasta mannvirki eyjarinnar, strandhofið Tanah Lot sem er án efa mest ljósmyndaði staðurinn á Balí. Snæddur hádegisverður á snoturri sveitakrá við hrísgrjónaakur. Að því loknu er haldið til Mengwi sem var stjórnarsetur voldugra konunga frá því á sautjándu öld og fram undir lok þeirrar nítjándu. Síðan er förinni heitið inn á miðja eyju til Úbúd og liggur leiðin um fagrar sveitir.

  5. 0521. mars 2023Kynnisferð 2 

    Úbúd og nágrannabæir – Batubulan, Celuk, Batuan, Mas, Kemenuh, Peliatan. Lagt af stað að loknum morgunverði kl. 9 og fyrst heimsóttir áhugaverðir staðir í Úbúd. Aðeins spölkorn frá ARMA er Apaskógurinn helgi (Holy Monkey Forest). Þar er friðaður griðastaður fyrir stórt samfélag makakíapa og nokkur forn hindúa-musteri, m.a. „Dauðahofið mikla“ Pura Dalem Agung, tileinkað guðinum Shiva. Síðan er ekinn hringur um miðbæ Úbúd til að glöggva sig á staðnum og þar næst heimsótt sölugalleríi starfandi myndlistarmanna. Úbúd er mesti listamannabærinn á Balí. Þá er haldið suður til steinsmíðabæjarins Batubulan þar sem tækifæri gefst til að sjá steinsmiði að störfum og skoða höggmyndir og styttur. Næst liggur leiðin um bæ þar sem nær allir íbúar fást við gull- og silfursmíðar og hafa gert mann fram af manni um aldir. Við heimsækjum stórt silfursmíðaverkstæði þar sem einnig er hægt að kaupa skartgripi. Þá er tekið hús á fjölskyldu í bænum Batuan til að kynnast dæmigerðri húsaskipan og tilhögun sem einkennir lífshætti og fornar reglur sem fylgt er vandlega enn í dag. Þessu næst er haldið til Mas og Kemenuh, mestu tréskurðarbæja Balí, þar sem hægt er að sjá handverksmenn við iðju sína og skoða stórkostlegt gallerí með stórum og smáum gripum, afrakstri þessa listiðnaðar sem gengið hefur í arf frá kynslóð til kynslóðar gegnum aldirnar. Að loknum hádegisverði á veitingastaðnum Malen í ljúfu umhverfi við iðgræna hrísgrjónaakra er svo á heimleiðinni komið við í virtasta dansskóla Balí þar sem Agung Istri Wirati kennir ungu fólki í garði konungshallarinnar Puri Kanginan í Peliatan, skammt frá ARMA. Nemendurnir stíga m.a. legong dans fyrir okkur en sá dans þykir þokkafyllstur allra Balídansa.

  6. 0627. mars 2023Kynnisferð 3

    Norður til fjalla – Tampaksiring, Pura Tirta Empul, Kintamani, Batur-vatn og Tegallalang. Lagt af stað kl. 9 að loknum morgunverði og ekið í norður til þorpsins Tampaksiring. Fyrst er rölt um matvælamarkað þorpsins til að kynnast högum almennings í sveitum áður en heimsótt er frægasta vatnshof Balí, Pura Tirta Empul, þangað sem eyjarskeggjar flykkjast á ákveðnum tyllidögum til andlegrar hreinsunar og uppljómunar. Hópnum gefst kostur á að lauga sig í hinu helga uppsprettuvatni og hljóta að því loknu blessun hindúaprests við sérstaka athöfn. Þessu næst er haldið upp á fjallgarðinn mikla þar sem upp úr gnæfa tindar sem ná allt að rúmlega þrjú þúsund metra hæð. Á leiðinni er numið staðar á búgarðinum Cantik þar sem ræktað er kaffi af ýmsum tegundum, te, kakó og fjölmargar aðrar nytjajurtir, meðal annars engifer, ginseng og ótal kryddtegundir. Gestum er meðal annars boðið að prófa framleiðsluna þ.á.m. að smakka hið fræga Luwak- eða „kattarkúkskaffi“, dýrasta kaffi í heimi. Loks er ekið norður til Kintamani og snæddur hádegisverður í hlíðinni þaðan sem undurfagurt útsýni er yfir Batur-vatn sem er gamall, risastór gígur, og til eldfjallanna beggja vegna vatnsins. Landslagið á bakaleiðinni til Úbúd er tilkomumikið og m.a. er numið staðar í bænum Tegallalang til að skoða hrísgrjónaakra í bröttum suðurhlíðum fjallanna og fræðast um fornt, hugvitsamlegt áveitukerfi Balíbúa, sem nefnist SUBAK, og fleira varðandi búskap á eynni.

  7. 0729. mars 2023Kynnisferð 4  

    Austur-Balí – Pura Goa Lawah, Tenganan, Candidasa, Karangasem, Tirta Gangga, Klungkung, Kertha Gosa. Leiðin liggur um borgirnar Gianyar, höfuðborg samnefnds héraðs, og Klungkung og svo austur með suðurströndinni. Fyrst er numið staðar til að skoða strandhofið Pura Goa Lawah við op hellis sem fullur er af leðurblökum. Þaðan er sagt að liggi göng upp í Gunung Agung, Fjallið mikla, eldfjallið fræga sem eyjarskeggjar líta á sem bústað guðanna. Hofið gegnir veigamiklu hlutverki varðandi útfararsiði Balíbúa. Þá er haldið enn lengra austur til Tenganan en það er eitt fimm þorpa frumbyggjanna Bali Aga sem voru fyrir á eyjunni þegar hindúar frá Jövu tóku að flytjast þangað fyrir rúmum þúsund árum. Þarna má fá nasasjón af menningu sem er um margt ólík menningu annarra Balíbúa. Því næst er haldið enn austar, til Candidasa og Amlapura, höfuðborgar Karangasem-héraðs og síðan upp í hlíð Agung-fjalls (Miklafjalls) til hins undurfagra staðar, Tirta Gangga, sem konungurinn í Karangasem lét útbúa sér til yndis. Þar er snæddur hádegisverður. Á bakaleiðinni er komið við í borginni Semarapura (eða Klungkung), sem fyrr á öldum var höfuðborg voldugasta konungsríkis Balí, og skoðaðar stórmerkilegar stjórnarbyggingar sem reistar voru á blómaskeiði þess. Frægust þeirra er dómshúsið Kertha Gosa.

  8. 0819. mars 2023Lúxusvillur á ARMA Resort

    Á ARMA Resort í Úbúd er kostur á gistingu í undurfögrum villum með afgirtum garði og einkasundlaug. Ýmsir frægir gestir hafa notað þetta húsnæði í heimsóknum til Balí, allt frá Desmond Tutu til Baracks og Michelle Obama. Takmarkaður fjöldi af þessum lúxusvillum er í boði.

Gisting

  • Hotel Griya Santrian Sanúr
  • ARMA ResortÚbúd

Verð

Verð á mann595.000 kr
Staðfestingargjald90.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli140.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flugfargjald frá Íslandi til Balí og til baka. Akstur til og frá flugvelli á Balí. Gisting á hótelum í hæsta gæðaflokki ásamt morgunverði, síðdegiskaffi og meðlæti. Fjórar heilsdags kynnisferðir um Balí. Aðgangseyrir að öllum stöðum sem skoðaðir eru. Akstur á tilfallandi viðburði sem færi kann að gefast á að taka þátt í s.s. brúðkaup, musterishátíðir, bálfarir o.s.frv. Hádegisverður í kynnisferðum. Auk þess þrír kvöldverðir. Enskumælandi fylgdar- og staðar-leiðsögumaður á Balí, hin ástsæla Ayu Tirta, hægri hönd Örnólfs á Balí í mörg ár. Íslensk fararstjórn og stöðug viðvera Örnólfs allan tímann. Ókeypis far með „hótelskutlu“ ARMA sem ekur hringferð um miðbæinn í Úbúd öðru hverju allan daginn. Ótakmarkaður aðgangur að listasafninu Agung Rai Museum of Art (ARMA) sem stendur í hótelgarðinum. Fullnaðaruppgjör 60 dögum fyrir brottför.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu Drykkir sem ekki fylgja máltíðum. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra. Aukagjald fyrir „villu“ með einkagarði og sundlaug í 11 daga á ARMA er 80.000 kr. á mann. (100.000 kr. fyrir „Obama-villuna) Takmarkað framboð er af því undurfagra húsnæði, fimm 2ja manna villur og ein 4ra manna (þ.e. hús með tveimur lúxusíbúðum).

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Balí — 11.–31. mars 2023.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 595.000 kr

Senda fyrirspurn