← Allar ferðir

Albanía, Kósovó og Norður Makedónía

15. – 28. september 2025

Ferðin er uppseld
14 dagarLengd ferðar
16 áfangarFerðaáætlun
548.000 krVerð á mann

Ferðaáætlun

Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.

  1. 0115. september 2025Keflavík–Tirana–Shkodra

    Lagt af stað frá Keflavík kl. 00:10 með næturflugi til Vínarborgar. Flogið til Tirana að morgni og lent þar kl. 11:10. Frá flugvellinum verður ekið til borgarinnar Shkodra, sem stendur rétt sunnan landmæranna að Svartfjallalandi í norðri. Hádegisverður snæddur á leiðinni. Hvíld og afslöppun eftir langt ferðalag síðdegis. Gisting í Shkodra á Hotel Red Bricks næstu tvær nætur. (H, K)

  2. 0216. september 2025Shkodra

    Shkodra er þriðja stærsta borg Albaníu og miðstöð rómversk-kaþólska minnihlutans í landinu. Kirkjur og moskur setja sinn svip á borgina og minna á friðsamlega sambúð ólíkra trúarbragða. Við hefjum daginn með því að heimsækja gamla kastalann, fræðumst um sögu hans og kynnumst frægri goðsögu sem tengist byggingu hans. Eftir hádegisverð á fögrum stað við Shkodra-vatnið verður gengið um í hjarta borgarinnar, merkar byggingar skoðaðar og verslað, ef áhugi er á. Gist í Shkodra. (M, H)

  3. 0317. september 2025Shkodra–Prizren

    Nú verður haldið til Kósovó. Hluta leiðarinnar er siglt á ferju á Koman-vatni. Siglingaleiðin, sem liggur milli himingnæfra fjalla, er einstök nátturuupplifun sem hefur á síðustu árum öðlast frægð um víða veröld. Eftir að hádegisverður hefur verið snæddur í fjallabænum Bajram Curri verður farið yfir landamærin að Kosovo, til borgarinnar Prizren þar sem gist er á Hotel Centrum næstu tvær nætur. (M, H)

  4. 0418. september 2025Prizren

    Ófriðurinn í Kósovó leiddi til óbætanlegs tjóns á bæjum og borgum og mikil menningarverðmæti eyðilögðust. Prizren, sem af mörgum er talin fegurst borga Kósovó, slapp að mestu við eyðileggingu og er gott dæmi um hvernig austrænar og vestrænar menningarhefðir mætast á Balkanskaganum. Við förum í útsýnisferð um Prizren fyrrihluta dags og notum síðdegið til hvíldar og hressingar í fögru umhverfi. Gist í Prizren. (M, H)

  5. 0519. september 2025Prizren–Kruja–Dürres

    Nú verður snúið aftur til Albaníu og næsti áfangastaður er fjallabærinn Kruja. Þar skoðum við safn um Skanderbeg, sem var einn frægasti herforingi sögunnar í Evrópu og varðist innrás Tyrkja í heilan aldarfjórðung, 1443–1468. Sumir sagnfræðingar telja að Skanderbeg hafi dregið svo tennurnar úr Tyrkjaher að hann hafi hætt við áform sín um að ráðast á Róm og páfastól sjálfan. Í Kruja gefst einnig tækifæri til að skoða einn stærsta útimarkað, eða bazaar, sem enn er við lýði á Balkanskaganum. Frá Kruja verður síðan ekið til hafnarborgarinnar Dürres og gist þar á Art Gallery Boutique Hotel. (M, H)

  6. 0620. september 2025Dürres–Ohrid

    Nú er ekið austur á bóginn yfir landamærin að Norður Makedóníu. Áfangastaður okkar þar er borgin Ohrid, sem stendur við samnefnt vatn. Norður Makedónía er fallegt land og Ohrid er sjálft krúnudjásnið, einn fjölsóttasti ferðamannastaður Balkanskagans, ef ekki sá fjölsóttasti. Gist í Ohrid á Lago Hotel & Spa næstu tvær nætur á Lago Hotel . (M, H)

  7. 0721. september 2025Ohrid

    Fyrir hádegi verður farið með innlendum leiðsögumanni um gömlu borgina þar sem meðal annars er að finna kirkjur og klaustur frá því um 800 e. Kr. Síðdegis gefst færi á að slaka á og njóta lífsins við strönd Ohrid-vatns. Gist í Ohrid. (M, H)

  8. 0822. september 2025Ohrid–Berat

    Og enn er haldið til Albaníu. Næsti áfangastaður er borgin Berat, þekkt sem „þúsund glugga borgin“. Skýringin á þeirri nafngift blasir við þegar komið er inn í gömlu borgina, en hún nýtur verndar samkvæmt skilmálum UNESCO. Fyrst verður stoppað í gömlum kastala sem hýsir safn eins frægasta málara landsins, Onufri. Onufri var uppi á 16. öld og málaði einkum helgimyndir, eða íkona, en var þekktur fyrir að sprengja hinn stranga ramma þeirrar listhefðar. Eftir kastalaheimsóknina skoðum við síðan gömlu borgina. Gist í Berat. (M, H)

  9. 0923. september 2025Berat–Gjirokaster–Saranda

    Ekið frá Berat til Gjirokaster sem stundum hefur verið uppnefnd „brattasta borg í heimi“. Líkt og í Berat er gamli bærinn í Gjirokaster á skrá UNESCO yfir menningarminjar á heimsvísu. Þar skoðum við dæmigert Ottómanhús, þar sem sami ættleggur hefur búið í hunduð ára. Einnig gefst kostur á að heimsækja önnur söfn að eigin vali. Ekið frá Gjirokaster til Saranda, fallegs strandbæjar við landamæri Albaníu og Grikklands. Gist á Demi Hotel í Saranda næstu tvær nætur. (M, K)

  10. 1024. febrúar 2025Saranda

    Frjáls dagur í Saranda. Hópurinn gistir á hóteli við ströndina og hefur frábæra aðstöðu til að njóta lífsins þar, því hótelið hefur eigið svæði til afnota fyrir gesti sína. Gist í Saranda. (M, K)

  11. 1125. september 2025Saranda–Vlora

    Ekið norður eftir hinni undurfögru Jónahafsströnd til strandborgarinnar Vlora. Um kvöldið er snæddur kvöldverður hjá fjallabændum sem bjóða upp á eigin afurðir og skemmta gestum með tónlist. Gist á Hotel Picasso í Vlora. (M, K)

  12. 1226. september 2025Vlora–Appolónía–Tirana

    Nú er haldið aftur til höfuðborgarinnar Tirana og hringnum lokað. Á leiðinni er komið við í öðru af frægustu minjasvæðum Albaníu, Appolóníu, bæ sem Rómverjar byggðu á fyrstu öldum eftir Krist, þar sem hægt er að ganga um meðal furðu vel varðveittra bygginga og dást að glæsileik löngu horfins tíma. Í Appolóníu var starfrækt akademía þar sem lögð var stund á klassísk hellenísk fræði og sumir af þekktustu keisurum Rómverja á tímabilinu sóttu menntun sína þangað. Gist á Hotel Elisa by Melia í Tirana næstu tvær nætur. (M, H)

  13. 1327. febrúar 2025Tirana

    Um morguninn verður skoðað risastórt neðanjarðarbyrgi frá kommúnistatímanum í Tirana þar sem yfirstéttinni var ætlað að hafast við ef kæmi til kjarnorkuárásar. Okkur býðst að heimsækja kvikmyndasafnið í Tirana og skoðum fleira af því markverðasta í hjarta borgarinnar. Kveðjukvöldverður og gisting í Tirana. (M, K)

  14. 1428. september 2025Heimferð

    Eftir morgunverð er haldið á flugvöllinn. Heimflugið er kl.15:00, við millilendum í Vín, og lendum í Keflavík kl. 23:20. (M)

  15. 15Fararstjóri – Jón Guðni Kristjánsson

    Fararstjóri í þessari ferð verður Jón Guðni Kristjánsson, fréttamaður og fyrrverandi umsjónarmaður Spegilsins á RÚV, sem er nauðakunnugur Balkanlöndum og starfaði þar hjá fjölþjóðastofnunum á árunum 1999–2002 í kjölfar ófriðarástandins á svæðinu. Í ferðinni verður farið um slóðir sem fáir Íslendingar þekkja af eigin raun, því svo stutt er síðan svæðið varð aðgengilegt og í ljós kom hvílíka ferðamannaparadís þessi lönd hafa að geyma – magnaða náttúrufegurð, fágætar sögulegar minjar og húsagerðarlist, ásamt hrífandi ströndum þar sem útlendu ferðafólki mætir gestrisni og elskulegt viðmót.

  16. 16Hagnýtar upplýsingar

    Fullnaðaruppgjör er 70 dögum fyrir brottför. Farþegar verða að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði frá brottför. Staðfestingargjald er óafturkræft nema ferðaskrifstofa þurfi að hætta við ferðina. Ferðaskrifstofan áskilur sér rétt til að breyta verði ef til stórfelldrar gengisbreytingar íslensku krónunnar kæmi. Verð ferðarinnar er miðað við að greitt sé með millifærslu en ekki kreditkorti. Hagræði farþega af því að borga með kreditkorti er sáralítið, og hefði í för með sér verulegan kostnað fyrir ferðaskrifstofuna sem óhjákvæmilega hlyti að hækka ferðaverðið. Sá kostnaður rynni síðan til útlendra kortafyrirtækja, í Ísrael og Brasilíu. Það heyrir sögunni til að ferðatryggingar sem fylgja kortum séu skilyrtar því að ferðakostnaður hafi verið greiddur með kortinu. Korthafinn er alltaf tryggður hvernig sem hann borgar ferðina. Þetta má fá staðfest hjá bankanum sem gefur út kortið. Ferðaskrifstofan FERIA gefur út farseðla. Fararstjóri er Jón Guðni Kristjánsson. Enskumælandi staðarleiðsögumenn, þar sem við á. Af gefnu tilefni bendum við á að ferðatryggingar sem fylgja kreditkortum gilda, jafnvel þó ferðin sé ekki greidd með kreditkorti, heldur millifærslum.

Gisting

  • Hotel Red Bricks★★★★Shkodra
  • Hotel Centrum★★★★Prizren
  • Art Gallery Boutique Hotel★★★★★Durres
  • Lago Hotel & Spa★★★★Ohrid
  • Demi Hotel★★★★Saranda
  • Hotel Picasso★★★★Vlora
  • Hotel Elisa by Melia ★★★★Tirana

Verð

Verð á mann548.000 kr
Staðfestingargjald100.000 kr
Viðbótargjald f. einbýli80.000 kr

Innifalið og ekki innifalið

Innifalið

Flug til og frá Tirana. Gisting með morgunmat á góðum 4* hótelum og 5* hóteli í Durres. Hálft fæði, þ.e. annaðhvort hádegisverður eða kvöldverður á hverjum degi. Íslensk fararstjórn. Enskumælandi fylgdarleiðsögumaður og staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum, þar með talið að söfnum og fornleifastöðum. Bátsferð á Koman-vatni.

Ekki innifalið

Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Þjórfé til innfæddra leiðsögumanna og bílstjóra. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.

Skráning og fyrirspurnir

Frekari upplýsingar og skráning þátttöku: ornolfur@ornolfur.is

Senda fyrirspurn

Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Albanía, Kósovó og Norður Makedónía — 15. – 28. september 2025.

Gistiaðstaða

Áætlað verð á mann: 548.000 kr

Senda fyrirspurn