




Víetnam og Kambódía
20. febrúar – 10. mars 2024
Ferðin er uppseldFerðaáætlun
Smelltu á dag til að sjá nánari lýsingu.
0120. febrúar 2024Flug til Hanoi
Flogið frá Keflavík með FI 318 til Osló kl. 07.50 og lent þar kl. 11.35. Síðan með Emirates EK 160 kl. 14.10 til Dubai og lent þar kl. 23.55. Haldið áfram kl. 03.40 með EK 394 til Hanoi. Emirates er eitt af bestu flugfélögum heims. Allur matur og drykkir eru ókeypis um borð.

0221. febrúar 2024Hanoi
Flogið frá Dubai með EK 394 til Hanoi og lent þar kl. 12.40. Ath. Hvert og eitt okkar þarf að sækja um „Visa on Arrival“ fyrir Víetnam á netinu og velja multiple entry visa. Multiple entry visa kostar $50 sem greiddir eru um leið og sótt er um á netinu. Nákvæmar leiðbeiningar um umsóknarferlið verða sendar út þegar nær dregur. Keypt hefur verið sérstök hraðafgreiðsluþjónusta á Hanoi-flugvelli ásamt aðstoð við að komast gegnum landamæraeftirlitið. Staðarleiðsögumaður frá Exo Travel tekur á móti hópnum á flugvellinum. Ekið til The Ann Hotel þar sem gist verður næstu þrjár nætur. Engin dagskrá er síðdegis eða um kvöldið svo hægt er að hvíla sig vel eftir langa flugferð.
0322. febrúar 2023Hanoi
Að loknum morgunverði kl. 8.30 er lagt af stað í heils dags kynnisferð um Hanoi. Fyrst er haldið á matvælamarkaðinn. Við göngum um þrönga ganga og ranghala þar sem ýmis forvitnileg matvara er seld, til að mynda lifandi froskar. Þarna er ævinlega iðandi og litríkt mannlíf, borgarbúar að draga björg í bú. Þá er ekið að Ho Tay (Vesturvatni) og skoðað Búddahofið Tran Quoc sem byggt var á 6. öld e.Kr. Þá liggur leiðin á Víetnamska þjóðfræðisafnið þar sem fá má allgóða mynd af fjölbreyttum uppruna kynþátta og sögu víetnömsku þjóðarinnar í aldanna rás. Næst er haldið að vatninu Hoan Kiem og skoðaður minnisvarðinn um Ly Thai To keisara sem gerði Hanoi að höfuðborg ríkis síns árið 1010. Að svo búnu er snæddur hádegisverður á ljómandi góðu veitingahúsi sem nefnist Koto. Eftir matinn er stutt ökuferð til hins fræga Musteris bókmenntanna sem var eini háskóli landsins frá 1076 og fram á 19. öld. Loks er farið í gönguferð um elsta borgarhverfi Hanoi þar sem í 36 þröngum götum má fá nasasjón af hefðbundnum lífsvenjum Víetnama. Gönguferðinni lýkur á markaðnum Hang Be. Síðast á dagskránni er svo Vatnsbrúðuleikhús sem er einstakt listform, iðkað í Norður-Víetnam. (M, H)

0423. febrúar 2024Hanoi
Kl. 8.30 að loknum morgunverði er lagt af stað í skoðunarferð um Hanoi. Fyrst skoðum við einn frægasta staðar borgarinnar, fangelsið Hoa Lo. Þar geymdu Frakkar félaga úr andspyrnuhreyfingunni um miðja 20. öld, en síðar, í Víetnamstríðinu og fram til 1975, sátu þar aðallega bandarískir stríðsfangar. Fólkinu í Hanoi var ekki sérlega hlýtt til Bandaríkjamanna sem fleygðu meira magni af sprengjum yfir borgina og nágrenni hennar en sem nam öllum sprengjum sem allir stríðsaðilar notuðu í seinni heimsstyrjöldinni. Bandarísku flugmennirnir kölluðu Hoa Lo „Hanoi Hilton“. Hádegisverður er snæddur á góðum veitingastað sem heitir Rue Lamblot. Eftir matinn er haldið til torgsins Ba Dinh þar sem Ho Chi Minh lýsti yfir sjálfstæði Víetnams árið 1945. Þaðan göngum við að húsinu þar sem Ho Chi Minh bjó á árunum 1958–1969 og stýrði hreyfingunni sem hann lifði ekki að sjá vinna fullnaðarsigur yfir her Suður-Víetnams og Bandaríkjanna, árið 1975. Í grenndinni stendur svo Einnar súlu Búddahofið sem reist var árið 1049 og er meðal frægustu fornminja Víetnams. Þessari ferð lýkur um kl. 15 svo gott ráðrúm gefst til að skoða sig um á eigin spýtur eða njóta lífsins á annan hátt það sem eftir lifir þessa síðasta dags í Hanoi. (M, H)
0524. febrúar 2024Lan Ha flói – Sigling hefst
Brottför frá hótelinu kl. 8.30. Haldið til strandar, ekið um búsældarlegar sveitir Rauðársléttunnar og síðasta spölinn yfir nýja brú sem er sú lengsta í Suðaustur-Asíu. Komið til hafnarbæjarins þangað sem við verðum sótt um kl. 11.30. Þar erum við boðin velkomin með tedrykkju á hafnarbakkanum áður en haldið er með skipsbáti út að skemmtiferðasnekkjunni Orchid Trendy þar sem gist verður næstu tvær nætur. Þegar innskráningu er lokið og fólk hefur fengið sína einkakáetu með svölum, hefst sigling um Lan Ha flóa, hluta af Halong flóa sem er eitt af undrum veraldar og á heimsminjaskrá UNESCO. Fyrst er siglt að Da Chong eyju til að skoða vita sem Frakkar byggðu fyrir meira en hundrað árum. Við gæðum okkur á hádegisverðarhlaðborði meðan siglt er milli smáeyjanna á Con Vit svæðinu. Kalksteinsklettarnir sem gnæfa hvarvetna upp úr haffletinum eru tilkomumikil og heillandi sjón. Þetta svæði er tiltölulega ósnortið í samanburði við fjölfarnari hluta Halong Bay, því fáir skemmtiferðarbátar sigla enn sem komið er þessa leið um Gia Luan svæðið sem tilheyrir Cat Ba þjóðgarðinum. Fyrst er skoðað svæðið þar sem „Dimmi og bjarti hellirinn“ er. Við látum fara vel um okkur á bambusbátnum sem flytur okkur að skoða þessa hella, leynidjásn Lan Ha flóa. Þá er farið í land á Cat Ba eyju og ekið til Trung Trang dropasteinshellisins sem er í djúpum dal, umlukinn skógi. Um kl. 17.00 er siglt inn á mjög fáfarið svæði í Lan Ha flóa, vík sem nefnist Tra Bau. Þar þykir mörgum ljúft að synda í svölum, smaragðsgrænum sjónum. Síðan má njóta útsýnisins af þilfari snekkjunnar meðan sólin sest í Tonkin-flóa. Hægt er að fá matreiðslukennslu hjá yfirkokkinum eða nýta sér „sælustundartilboðin“ á barnum. Kl. 19.15 er borinn fram lúffengur veislumatur, matbúinn er af færu fagfólki um borð. Eftir mat er tilvalið að njóta flóastemmningarinnar uppi á efra dekki, reyna sig við smokkfiskveiðar eða panta sér nudd. (M, H, K)

0625. febrúar 2024Sigling um Lan Ha flóa
Kl. 6.30 er boðið upp á Tai Chi æfingar á sólardekki snekkjunnar meðan sól rís úr sæ. Morgunsvalinn er hressandi. Morgunverður er kl. 7.30 í veitingasalnum þaðan sem gott útsýni er yfir flóann. Og skipið siglir af stað. Klukkustundu síðar er farið í land í Viet Hai þorpi á Cat Ba sem er stærsta eyjan í flóanum. Hjólreiðaferð um regnskóg, dimm göng, heillandi landslag og hrísgrjónaekrur. Rafbílar eru til reiðu fyrir þá sem heldur vilja aka en hjóla. Staldrað við í þorpinu til að slaka á. Við skoðum hús byggt með gamla laginu, úr stráum, leir og bambus. Að því loknu förum við aftur um borð í snekkjuna og höfum tíma til að slaka á fram að hádegismat. Kl. 12.30 er hádegishlaðborð meðan silgt er lengra inn í Lan Ha flóa. Hægt er að „fleygja sér“ svolitla stund áður en dagskrá eftirmiðdagsins tekur við. Kl. 14.30. meðan snekkjan siglir með okkur áleiðis til Apaeyjarsvæðisins, blasir við sjónum ströndin Cat Dua með hundruðum undurfagurra kalksteinsfjalla allt um kring. Þessari dýrð er hægt að kynnast nánar með því að sigla um á kajökum, synda eða bara sóla sig í fjörunni. Kl. 19.15 er snæddur ljúffengur kvöldverður og á eftir er upplagt að njóta stemningarinnar uppi á sólardekkinu þar sem er bar með alls kyns drykkjum. (M, H, K)
0726. febrúar 2024Hanoi–Saigon
Kl. 6.15 er aftur boðið upp á hressandi og endurnærandi Tai Chi meðan flóinn skartar sinni morgunfegurð. Eftir það er borinn fram morgunverður kl. 7.00 og kl. 7.45 gefst kostur á að fara á kajak. Kl. 8.30 er komið aftur um borð í Orchid og nú er tími til að taka saman pjönkur sínar og skrá sig út. Kl. 10.00 er borinn fram gómsætur dögurður meðan siglt er til hafnar. Um kl. 11.30 er komið í höfn þar sem heitir Tuan Chau Marina og stigið um borð í rútuna sem flytur okkur til Hanoi-flugvallar. Flogið með VN255 kl. 16.00 til Saigon og lent þar kl. 18.15. Ekið inn í Saigon og skráð sig inn á Rex Hotel, glæsilegt 5 stjörnu hótel sem var oft í brennidepli í Víetnamstríðinu, því þar hélt Bandaríska herstjórnin sína daglegu blaðamannafundi og þar dvöldu flestir helstu fréttaritarar heimsblaðanna. Kvöldverður á vönduðu veitingahúsi sem heitir Hoa Tuc. (M, dögurður, K)

0827. febrúar 2024Saigon
Kl. 8.30 að loknum morgunverði er lagt af stað í skoðunarferð um þessa glæsilegu, gömlu höfuðborg Franska Indókína, sem gekk undir nafninu „París Austurlanda“. Fyrst er skoðuð frægasta bygging borgarinnar, Pósthúsið, sem líklega var teiknað af Marie-Alfred Foulhoux en er oft ranglega eignað Gustave Eiffel sem hannaði Eiffel-turninn. Pósthúsið var reist á árunum 1886–1891. Í grenndinni stendur Notre Dame dómkirkjan, einnig byggð af Frökkum í lok 19. aldar. Þessar byggingar standa við sömu götu og Hotel Majestic. Farið í heimsókn í Gialong-höllina sem hýsir Safn Ho Chi Minh borgar og fræðst um stormasama sögu hennar. Gengið um „Le Loi“ götu og farið í heimsókn til listamanns sem sérhæfir sig í hefðbundnu ristuþrykki. Hádegisverður snæddur á veitingahúsi sem heitir Viet Village. Þá er gamli markaður miðbæjarins skoðaður, rölt um stræti elsta borgarhlutans og tyllt sér niður til að fá sér hressingu á einhverju af hinum frægu, sjarmerandi kaffihúsum sem prýða staðinn. Að svo búnu er hægt að velja um að láta aka sér heim á hótel eða verða eftir á Ben Thanh markaðnum til að versla og sjá sig um. Aðeins um 10 mínútna akstur er heim á hótel frá markaðnum. (M, H)
0928. febrúar 2024Cu Chi göngin
Lagt af stað kl. 8.30 að loknum morgunverði í um rúmlega klukkustundar bílferð norður fyrir borgina að skoða hin frægu Cu Chi göng og eins konar safn mannvirkja og hergagna, eflaust merkilegustu minjar um Víetnam-stríðið sem hægt er að sjá í landinu. Leiðin liggur um fagrar sveitir. Til baka er farið á hraðbáti niður Saigon-ána. Ferðin tekur eina og hálfa klukkustund og báturinn lendir skammt frá hótelinu. Eftir hádegið er hægt að sjá sig um í borginni á eigin spýtur. Margt er að skoða í Saigon, til dæmis ekki fráleitt að bregða sér á Stríðsminjasafnið eða skoða Forsetahöll Suður Víetnam. Þá er ekki úr vegi að fá sér kaffi eða aðra hressingu á 52. hæð Bitexo, hæstu byggingar borgarinnar, þaðan sem útsýnið er einstakt. Um kvöldið gefst kostur á að kynnast hinum víðfræga víetnamska götumat og næturlífið í Saigon undir handleiðslu staðarleiðsögumanns okkar. Þessi ferð er utan dagskrár og ekki innifalin í verðinu. Hún verður nánar kynnt síðar. (M)

1029. febrúar 2024Saigon – Cai Be – Can Tho
Kl. 8.30 að loknum morgunverði er Rex Hotel kvatt og ekið áleiðis til Mekong-óshólmanna sem eru eitthvert rómaðasta gósenland Asíu. Engar ýkjur eru að þar drjúpi smjör af hverju strái. Eftir ósigur Frakka í orrustunni við Dien Bien Phu árið 1954, sem markaði endalok nýlenduveldis þeirra í Indókína, voru það þung spor fyrir margar franskar fjölskyldur að yfirgefa sveitirnar á Mekong-svæðinu sem í sumum tilfellum höfðu verið heimkynni þeirra kynslóðum saman, og enn í dag hugsa allmargir Frakkar til þessa „heimalands síns“ með sárum söknuði. Á leiðinni til óshólmanna er höfð viðkoma í Cao Dai kirkju, guðshúsi einstakra trúarbragða, eins konar samblands af taóisma, Búddisma og Konfúsíusarhyggju ásamt kristni og íslam, sem margar milljónir manna í Víetnam aðhyllast. Við ökum fyrst til bæjarins Cai Be og fáum þar prívat-júnku til að sigla á um ána. Fyrst heimsækjum við frægan fljótandi markaði. Eftir að komið er aftur á þurrt land skoðum við ýmiss konar heimaframleiðslu, s. s. á hrískökum, hrísgrjóna-poppkorni og kókoshnetubrjóstsykri. Við siglum áfram milli sígrænna og fagurra Mekong-óshólmanna eftir margslungnu neti ótal þveráa, sunda og síkja. Hádegismatur er borinn fram á veitingastað á einni eyjunni áður en við förum aftur um borð í júnkuna. Við siglum svo í rólegheitum áfram til Vinh Long og virðum á leiðinni fyrir okkur ljúft landslag og friðsælt líf sveitafólksins á Óshólmunum. Að því loknu er farið í land og um borð í rútuna sem flytur okkur til Can Tho, sem er myndarborg og höfuðstaður Mekong-svæðisins. Þar er gist næstu tvær nætur á Victoria Can Tho hótelinu sem er afskaplega sjarmerandi gististaður á bakka Mekong-fljóts og í göngufæri við miðborgina. (M, H)

111. mars 2024Can Tho
Lagt af stað í skoðunarferð um borgina snemma um morguninn til að sjá Cai Rang fljótandi markaðinn í fullum ganngi. Farið er m.a. í litlum bátum um þrönga vatnavegi. Þarna er margt að sjá. Can Tho er háskólaborg, stærsta borg Mekong óshólmanna, og stendur á mótum þriggja vatnsfalla í landfræðilegri miðju þessa frjósamasta og auðugasta héraðs Víetnams. Þetta svæði var á miðöldum hluti af heimsveldi Kmera (sem við eigum eftir að kynnast betur í Siem Reap) og enn í dag er verulegur hluti íbúanna af kmerakyni, þ.e. af kambódísku bergi brotinn. Síðdegis er engin dagskrá en á hótelinu er frábær aðstaða til sundiðkunar, hægt að fara í nudd eða skoða bæinn. Kvöldverður er snæddur á hótelinu. (M, K)
122. nóvember 2023Can Tho – Chau Doc
Morgunverður snæddur á hótelinu og síðan skráð sig út og haldi áfram upp með Mekong fljóti til Chau Doc, en komið við á þremur stöðum á leiðinni – í Bin Thuy húsinu þar sem megnið af kvikmyndinni The Lover (L´Amant) var tekið upp, á Can Tho safninu og svo á stórum krókódílabúgarði. Kvöldverður snæddur á Hotel Victoria Chau Doc. (M, K )

133. mars 2024Chau Doc – Phnom Penh
Að loknum morgunverði er haldið af stað með hraðbáti frá bryggju Victoria-hótelsins upp Mekong-fljót. Stutt er til landamæra Kambódíu frá Chau Doc. Lent er og dvalið um stund við landamærastöðina þar sem við þurfum að fá stimpil í passana. Þar þarf að hafa eftirfarandi tiltækt: 1) Vegabréfin 2) 40 USD í seðlum (ATH! Seðlarnir þurfa að vera óaðfinnanlegir) Um 5 klst. ánægjuleg sigling er með hraðbátnum til Phnom Penh, höfuðborgar Kambódíu. Á leiðinni getum við virt fyrir okkur forvitnilegt mannlífið á bökkunum Mekong-fljóts. Afbragðs tækifæri til myndatöku. Komið til Pnom Penh, sem stendur á mótum stórfljótanna Mekong og Tonlé Sap, um kl. 13. Að lokinni innskráningu á Royal Palace Gate Hotel, sem er frábært 5 stjörnu hótel rétt hjá konungshöllinni í miðri borginni, gefst góður tími til að skoða sig um eða njóta lífsins við sundlaug hótelsins. Phnom Penh var álitin ein fegursta borg Franska Indókína. En á tímum ógnarstjórnar Rauðu Kmeranna 1975–1979 voru nær allir íbúarnir reknir út úr borginni með fádæma harðýðgi og hnepptir í þrælkunarvinnu í sveitum. Undanfarna áratugi hefur samt sem áður gengið býsna vel að hleypa nýjum krafti í borgarlíf Phnom Penh og er sérlega gaman að ganga þar um göturnar, kíkja á markaði og setjast niður á veröndum kaffihúsa eða góðum veitingastöðum sem enginn skortur er á, einkum á árbakkanum, ekki langt frá frá hótelinu okkar. Þetta er heillandi borg, í senn vestræn og asísk, með breiðgötum og háum trjám í röðum meðfram þeim, fögrum pagóðum og glæsilegum byggingum frá nýlendutímanum. (M)
144. mars 2024Phnom Penh
Kl. 8.30 að loknum morgunverði fræðumst við um þann hrylling sem kalla mætti helför kambódísku þjóðarinnar, þegar Pol Pot og Rauðu kmerarnir hans myrtu á tæpum fjórum árum 2,5–3 milljónir landa sinna. Fyrst er haldið til aftökustaðarins illræmda í Choeung Ek sem heimurinn kallar gjarnan Killing Fields upp á ensku. Þar létu ótal margir lífið og er hægt að sjá þarna ýmsar minjar um fórnarlömbin og örlög þeirra, fjöldagrafir og „stúpu“ fulla af hauskúpum. Því næst er heimsótt safn í gömlu skólahúsi, Tuol Sleng, þar sem starfrækt var skelfilegasta fangelsi Rauðu kmeranna, S-21. Í hádeginu er snæddur dæmigerður kmeramatur á víðfrægu veitingahúsi sem nefnist Malis. Eigandinn er helsti stjörnukokkur Kambódíu, Luu Meng. Eftir hádegismatinn er farið að skoða Konungshöllina sem fullgerð var árið 1866, á nýlendutíma Frakka. Við hlið hallarinnar stendur Silfurpagóðan sem dregur nafn af fimm tonnum af skínandi silfri sem lögð voru í gólfið. Upphaflega nafnið er Wat Prakeo sem þýðir Musteri hins smaragðsgræna Búdda. (M, H)

155. mars 2024Phnom Penh – Siem Reap
Morgunverður og útskráning af Royal Palace Gate hótelinu. Brottför til flugvallar kl. 11.00. Flogið kl. 13.30 með SS1 til Siem Reap og lent þar kl.14.25. Siem Reap liggur við hlið þess makalausa svæðis þar sem á síðari hluta miðalda stóð stórborg með um milljón íbúum, meðan mannfjöldi helstu borga Evrópu fór varla yfir 200 þúsund. Þetta var höfuðstaður stórveldis Kmera sem um alllangt skeið náði langt út fyrir það svæði sem nú heitir Kambódía. Angkor Thom var stjórnarsetrið og Angkor Wat aðalmusterið, stærsta guðshús sem fundist hefur í Suðaustur-Asíu. Siem Reap er einkar aðlaðandi 150 þúsund manna bær, fallega staðsettur á árbökkum. Þar er ánægjulegt, eftir könnun á fornminjum að morgni, að ganga um eftir hádegið og skoða fagrar byggingar, markaði og litríkt götulíf. Angkor Village Hotel er einstakur gististaður, í gangfæri við miðbæinn þar sem aðalmarkaðurinn og flest veitingahúsin og krárnar eru, ekki síst við „Pub Street“. Hótelið er afskaplega notalegt og þar er ljómandi góð sundlaug, fagrir garðar og ýmislegt annað sem hjálpar fólki að njóta lífsins. Þennan fyrsta dag í Siem Reap er boðið upp á kvöldverð á glæsilegu veitingahúsi hótelsins. (M, K)

166. mars 2024Angkor Wat – Ta Prohm
Kl. 8.30, eftir morgunverð, er byrjað á að skoða frægasta mannvirki Kambódíu, musterið Angkor Wat, sem reist var á ríkisstjórnarárum Suryavarmans II konungs á fyrri hluta 12. aldar. Angkor Wat mun vera ætlað að tákna fjallið Meru, bústað guðanna. Að innan eru veggir musterisins þaktir höggmyndum og lágmyndum sem endurspegla goðsagnir hindúa og sömuleiðis hetjusagnir af hernaði Suryavarmans konungs. Þá skreyta tvö þúsund Apsara-dansmeyjar musterið. Angkor Wat prýðir nú þjóðfána Kambódíu þar sem hofið þykir táknrænt fyrir þjóðarsálina. Þá er heimsótt annað hof, Ta Prohm, reist nokkrum áratugum á eftir Angkor Wat af Jayavarman VII konungi, undir aldamótin 1200. Ólíkt öðrum fornum byggingum á svæðinu, sem fallin voru í gleymskunnar dá og höfðu nánast orðið frumskóginum að bráð, var ákveðið að leyfa þessu búddahofi að vera áfram nánast í því ástandi sem það fannst í til að sýna hvernig náttúran getur leikið mannanna verk. Ta Prohm hefur verið náttúruleg leikmynd nokkurra ævintýrakvikmynda, þ.á.m. The Tomb Raider með Angelinu Jolie. Snæddur hádegisverður á veitingahúsinu The Square 24 áður en ekið er aftur heim á hótelið. Síðdegið er frjálst. (M, H)

177. mars 2024Ankor Thom – Bayon
Kl. 8.30 að loknum morgunverði er farið að skoða hina fornu höfuðborg kmeraveldisins, Angkor Thom, sem er umlukt átta metra hárum múr. Farið er inn um hið mikilfenglega suðurhlið, úr steini með höggmyndum af fílum og fjórum ógnarstórum andlitum. Beggja vegna hliðsins eru 54 guðir og djöflar sem halda í hina heilögu Naga-slöngu. Síðan er haldið til Bayon-hofsins sem stendur nákvæmlega í miðpunkti Angkor Thom. Þessi fagra bygging frá 12. öld skartar 54 turnum sem tákna 54 skattlönd hins mikla stórveldis Kmera. Hádegisverður á Malis sem er glæsilegasti veitingastaðurinn í Siem Reap (sami eigandi og Malis Phnom Penh) áður en haldið er heim á hótel. Síðdegið frjálst. (M, H)
188. mars 2024Siem Reap
Morgunverður á hótelinu. Frjáls dagur í Siem Reap. Hér er margt sem hægt er að skoða, t.d. frábær söfn. Fararstjórar og innfæddi leiðsögumaðurinn eru boðnir og búnir að veita upplýsingar og aðstoð. Tilvalið er að leigja sér tuk-tuk, vagn dreginn af skellinöðru, og skoða bæinn eða sveitina umhverfis hann, þar sem er margt að sjá.
199. mars 2024Heimflug hefst
Eftir morgunverð á hótelinu er lagt af stað til flugvallar kl. 8.15. Ráðlegt er að ganga frá reikningum í gestamóttökunni kvöldið áður til að forðast tafir. Flogið er frá Siem Reap með K6 808 kl. 10.05 og lent í Ho Chi Minh City kl. 11.10. Farangurinn er skráður alla leið til Íslands, en innskráning farþega á flug EK 393 til Dubai þarf að bíða kvölds. Þar sem biðtíminn er svona miklu lengri en í upphaflegri áætlun hefur verið bætt inn hádegisverði og kynnisferð 9. mars. Okkar bíður því rúta og leiðsögumaður á flugvellinum. Þegar komið er inn í borgina er byrjað á að snæða hádegismat en síðan tekið til við að skoða forvitnilega staði í þessari stærstu borg Víetnams. Heimsótt er FITO-safnið sem geymir fjölskrúðuga mynd af sögu víetnamskrar læknisfræði. Einnig er skoðuð Pagóða Jade keisara, eitt glæsilegasta og þekktasta musteri borgarinnar. Þá er haldið til markaðarins Tan Dinh, sem líklega er sá elsti í HCMC, áður en ekið er aftur út á flugvöll. Við innritun á flugið EK 393 kl. 23.55 þarf að gæta þess að fá einnig brottfararspjöld fyrir Dubai og Kaupmannahöfn (alls 3 spjöld).

2010. mars 2024Dubai – Kaupmannahöfn – Keflavík
Lent í Dubai kl. 4.25, flogið áfram til Kaupmannahafnar með EK 151 kl. 8.30 og lent á Kastrup-flugvelli kl. 12.30. Síðan fljúgum við með FI 213 kl. 20.50 til Íslands. Lending í Keflavík kl. 23.20.

21Praktískar upplýsingar
Fullnaðaruppgjör er 60 dögum fyrir brottför. Farþegar þurfa að gæta þess að vegabréf séu gild í minnst 6 mánuði eftir heimferðardag. Sækja þarf um vegabréfsáritun, multiple entry visa til Víetnam í gegnum netið (e-visa). Multiple entry visa kostar 50$ og greiðist um leið og sótt er um á netinu. Ferðaskrifstofan VITA gefur út farseðla. Örnólfur hannaði ferðina og skipulagði, valdi áfangastaði, gististaði og ferðartilhögun. Fararstjórar í þessari ferð verða Örnólfur Árnason og Baldvin Hafsteinsson. Enskumælandi staðarleiðsögumenn eru alltaf með í för til að miðla fróðleik og sjá um að allt gangi eftir áætlun.
Gisting
- The Ann Hotel★★★★Hanoi
- The Orchid Trendy★★★★★Sigling
- Rex Hotel★★★★★Saigon
- Victoria Can Tho★★★★Can Tho
- Victoria Chau Doc★★★★Chau Doc
- Royal Palace Gate Hotel★★★★★Phnom Penh
- Ankor Village Hotel★★★★★Siem Reap
Verð
Innifalið og ekki innifalið
Innifalið
Allt flug, einnig innanlandsflug í Víetnam og Kambódíu. Gisting með morgunverði. Máltíðir sem getið er í lýsingu (M, H og K) M=Morgunverður, H=hádegisverður, K=kvöldverður. Kynnisferðir skv. ferðarlýsingu. Allur akstur í Asíu í loftkældum langferðabílum. Fararstjórn: Örnólfur Árnason og Baldvin Hafsteinsson. Enskumælandi staðarleiðsögumenn. Allur aðgangseyrir í kynnisferðum. Bátsferðir sem getið er í ferðarlýsingu. Ferð með hraðbáti frá Chau Doc til Phnom Penh. Þóknun fyrir hraðafgreiðslu vegabréfsáritunar í Víetnam.
Ekki innifalið
Forfalla-, ferða- og slysatryggingar. Vegabréfsáritun (multiple entry visa) $50 til Víetnams, sótt um á netinu (e-visa), og $36 vegabréfsstimpilsgjald sem greiðist við komu til Kambódíu. Þjórfé til leiðsögumanna og bílstjóra, c.a. $5 á dag. Máltíðir sem ekki er getið um í lýsingu. Drykkir sem ekki fylgja máltíðum.
Skráning og fyrirspurnir
Senda fyrirspurn
Skildu eftir nafn og símanúmer eða netfang og við höfum samband vegna Víetnam og Kambódía — 20. febrúar – 10. mars 2024.
